Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 71
69
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
eftir þeim frá útflytjendum sjávarafurða.
Bankinn er aðili að Factors Chain
International og getur því haft milligöngu
um kaup krafna frá kaupendum í öllum
heimshornum.
Gjaldeyrisviðskipti
Landsbankinn hefur frá stofnun haft
sterka markaðsstöðu í gjaldeyrisviðskipt-
um og eru mörg af stærstu inn- og út-
flutningsfyrirtækjum landsins í viðskiptum
við Landsbankann. Bankinn býður upp á
alla þá þjónustu sem fyrirtækjum er
nauðsynleg til að stunda gjaldeyrisvið-
skipti og til að stýra gjaldeyrisáhættu
sinni og nýtast vel þar kraftar nokkurra af
reyndustu sérfæðingum landsins á sviði
gjaldeyrisviðskipta.
Skuldastýringarráðgjöf
Gjaldeyrissérfræðingar bankans vinna
náið með sérfræðingum skuldastýringar
en Landsbankinn býður nú fyrirtækjum
uppá skuldastýringarráðgjöf með það að
markmiði að lækka fjármagnskostnað og
minnka áhættu.
Ráðgjafasamningur felur í sér tillögur
um samsetningu lánasafns út frá for-
sendum fyrirtækisins, og gerðar eru til-
lögur um aðgerðir sem færa núverandi
lánasafn yfir í aðra samsetningu, sem er
áhættuminni og/eða ber lægri vexti.
Reglulega er gerð áhættugreining á
myntkörfu, árangur mældur, og settar
fram tillögur um aðgerðir til að viðhalda
markmiðum fyrirtækisins. Árangur af ráð-
gjöfinni er reglulega settur fram í skýrsl-
um sem farið er yfir með viðskiptavinin-
um.
Nú þegar hafa mörg af stærri sjávar-
útvegsfyrirtækjum landsins valið að not-
færa sér þessa ráðgjöf og nýta sér
þannig krafta sérfræðinga Landsbankans
til að lækka fjármagnskostnað og minnka
áhættu í rekstri sínum.
Fyrirtækjaráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans er sér-
hæfð eining sem vinnur ráðgjafarverkefni
fyrir fyrirtæki og sveitarfélög. Markmið
deildarinnar er að hjálpa viðskiptavinum
sínum að ná markmiðum sínum, auka
arðsemi og skapa aukin verðmæti. Fyrir-
tækjaráðgjöf Landsbankans hefur mikla
reynslu af aðstoð við umbreytingarverk-
efni viðskiptavina sinna í fjölda farsælla
verkefna sem unnin hafa verið í samvinnu
við stjórnendur fyrirtækja. Sem dæmi um
umbreytingu má nefna samruna fyrir-
tækja, yfirtöku, umbreyting efnahags,
kaup/sölu rekstrareininga, opnun félaga
og skráning á markaði. Í tengslum við
samruna fyrirtækja tekur fyrirtækjaráð-
gjöfin m.a. að sér að meta samlegðará-
hrif samruna, vinna að stefnu og framtíð-
arsýn nýs félags, verðmeta félög og
rekstrareiningar, gera samrunaáætlanir,
undirbúa samþykki stjórna og vinna
ýmsa tæknilega frágangsvinnu. Fyrir-
tækjaráðgjöf Landsbankans tekur einnig
að sér sérhæfð ráðgjafaverkefni fyrir fyrir-
tæki og sveitarfélög, sem dæmi um verk-
efni má nefna ráðgjöf um fjármögnun
verkefna og árangursstjórnun.
Sérhæfðir starfsmenn
Öflugt lið sjávarútvegssérfræðinga starfar
á fyrirtækjasviði bankans og hefur um-
sjón með þjónustu við sjávarútvegsfyrir-
tæki. Áhersla er lögð á hraða og fag-
mannlega þjónustu sérfræðinga sem
þekkja vel til aðstæðna viðskiptavina
bankans í sjávarútvegi.
Öflugt lið sjávarútvegssérfræðinga starfar á fyrirtækjasviði bankans og hefur umsjón með þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki.