Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 76
74
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Hleragerðin
Fiskislóð 49 - 51
101 Reykjavík
Sími: 561 5760
Fax: 561 5665
Hleragerðin var stofnuð árið 1972,
og starfaði fyrstu árin á Selvogs-
götu, þar sem Hlera- og rúllugerðin
var en fyrr á öldinni var þar svokall-
að Flosaport. Í dag er Hleragerðin
staðsett á Grandanum, Fiskislóð 49-
51, í vel útbúnu verkstæðishúsnæði.
Þar starfa í dag 10 starfsmenn.
„Á síðustu 30 árum hafa hlerar tekið
miklum framförum. Á áttunda áratugnum
breytast hlerarnir úr tréhlerum í járnhlera.
Þessu hefur fylgt að hlerarnir eru mun
sterkari og endingarbetri,“ segir Bjarni
Sigurðsson, verkstjóri hjá Hleragerðinni.
„Með samstarfi við skipstjórnarmenn í
gegnum árin höfum við þróað hlerana og
náð aukinni skverun með sömu olíu-
eyðslu. Síðustu 2 árin höfum við verið í
samstarfi við verkfræðistofuna Útgerðar-
tækni við þróun á hlerunum okkar með
góðum árangri.“
Hleragerðin mun taka upp þá nýbreytni
að láta vandaðan hugbúnað fylgja með
endurbættum flottrollshlerum, sem eru að
koma á markað frá Hleragerðinni. „Hug-
búnaður þessi byggist á gagnagrunni
unnum upp úr nákvæmri módelprófun
hleranna. Skipstjórnarmenn geta því jafn-
vægisstillt hlerana sjálfir um borð með
hjálp hugbúnaðarins. Þessi hugbúnaður
kemur einnig til með að fylgja með botn-
hlerunum frá Hleragerðinni og má reikna
með að það geti orðið með haustinu,“
segir Bjarni og bætir við: „Hugbúnaðinn
komum við til með að sýna á bás okkar
númer P140 á sjávarútvegssýningunni.“
Meðal annarra nýjunga Hleragerðar-
innar eru lóð fyrir tveggja trolla veiðar en
rannsókna- og hönnunarvinnu við þau er
nýlokið og verður framleiðsla á þeim haf-
in á næstunni.
„Af öðru sem við framleiðum má m.a.
nefna tilbúna festikengi fyrir mismunandi
álag með leiðbeiningum um uppsetningu
og slitþol. Á þennan hátt stuðlar Hlera-
gerðin að auknu öryggi við hífibúnað um
borð í skipum. Hleragerðin framleiðir
English Summary
Hleragerðin, a company specializing in trawl doors was founded in 1972 and employs 10 people today. In the last 30 years trawl door
designing has taken great leaps. In the seventies the trawl doors changed from being made out of wood, into being made out of
metal. This resulted in great improvements in strength and durability. In co-operation with sailors through the years we have developed
our trawl doors and achieved greater spread while maintaining the same fuel consumption. For the last two years we have colla-
borated with the engineering firm Útgerðartækni, in further developing our trawl doors with good results.
Hleragerðin is now introducing another innovation which shows further advance in trawl door design. Sophisticated computer
software will be included with their new improved trawl doors, making it possible for the ship´s captain to adjust the balance him-
self aboard the ship. The Company will introduce this revolutionary software in booth P140 at the Icelandic Fisheries Exhibition.
Among other innovations from Hleragerðin are weights intended when using two trawls. Research and development has recently
been completed and production is due to start in the nearest future.
Additionally, Hleragerðin also offers repairs aboard vessels as well as repairing all types of trawl doors. Hleragerðin welcomes
you to booth P140 at the exhibition.
Byltingarkenndur hugbúnaður