Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 88
86
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Akraneshöfn
Faxabraut 1
300 Akranes
Þjónustusími: 893 1110
Netfang: akhofn@akranes.is
Veffang: www.akraneshofn.is
Akraneshöfn, ágúst 2002. Mynd: Hreinn Magnússon.
Akraneshöfn til
þjónustu reiðubúin
„Hvers vegna ættu áhafnir og út-
gerðir skipa að eyða tíma í bið eftir
að landa bolfiski í grannhöfnum við
Faxaflóa þegar í boði er skjót og ör-
ugg þjónusta á Skaganum?“ Hafn-
aryfirvöld á Akranesi spyrja sig og
aðra þessarar spurningar og svara
sjálf: Prófið að landa á Akranesi!
Kristján Sveinsson, stjórnarformað-
ur Akraneshafnar, bendir á að öll
nauðsynleg þjónusta sé til staðar í
Akraneshöfn og í bænum. Viðlegu-
rýmið í Akraneshöfn sé gott og til
standi að bæta aðstæður enn frekar
með stálþili á viðlegukant og dýpk-
un í höfninni. „Akranes er tvímæla-
laust aðlaðandi löndunarstaður en
það kann að vera að of fáir geri sér
grein fyrir því! Höfuðborgarsvæðið
er í seilingarfjarlægð ef ætlunin er
að flytja aflann þangað, öflug þjón-
ustufyrirtæki á flestum sviðum sjáv-
arútvegs eru á Akranesi og því er
hér nánast allt til alls,“ segir Kristján.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri og hafnar-
stjóri, segir augljóst að mikill hraði og lítill
biðtími við löndun jafngildi verulegum
sparnaði í útgerð fiskiskipa. Þarna geti
Akraneshöfn skákað mörgum öðrum
höfnum, þökk sé löndunargengi Djúpa-
kletts ehf. í Grundarfirði sem hóf sam-
starf við Skagamenn árið 2000.
„Það er engu logið þegar fullyrt er að
drengirnir hjá Djúpakletti séu hreinir yfir-
burðamenn þegar löndun úr togurum er
annars vegar. Vinnuhraðinn og verk-
skipulagning er með ólíkindum og þeir
voru meira að segja boðnir til Bremer-
haven til að sýna þýskum hafnarkörlum
hvernig ætti að bera sig að við löndun.
Fjórir Grundfirðingar hreinsuðu upp úr ís-
fisktogaranum Klakki á 9 klukkutímum en
það þurfti 14 Þjóðverja til að landa þess-
um farmi á jafnlöngum tíma!“ segir Gísli.
Framkvæmdastjórn undir einum hatti
Akraneshöfn annast framkvæmdastjórn Grundartangahafnar, í umboði stjórnar
þeirrar síðarnefndu, samkvæmt samningi sem undirritaður var í janúar 2002. Sami
hafnarstjóri er á báðum stöðum, Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi. Akraneshöfn
annast eftirlit með rekstri Grundartangahafnar, þjónustu dráttarbáta, markaðssetn-
ingu og fleira en Klafi ehf. sér um daglega stjórnun, móttöku og þjónustu við skip og
eftirlit með hafnarsvæðinu. Framkvæmdastjóri Klafa er Guðmundur Eiríksson.
Eigendur Grundartangahafnar eru Akraneskaupstaður og sveitarfélög í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu.