Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 92
90
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
SINDRI
Klettagörðum 12
104 Reykjavík
Sími: 575 0000
Fax: 575 0010
sindri@sindri.is
www.sindri.is
Með nýja Maxipacker kerfinu þarf ekki lengur að stunda flóknar æfingar á lyftara til að ná niður
vörum við þröngar aðstæður, að sögn Péturs H. Péturssonar, sölufulltrúi vöruhúsalausna hjá
SINDRA.
Lítið vélmenni eða róbót hefur hafið
innreið sína í vöruhús og frysti-
geymslur. Koma hans boðar nýja og
spennandi möguleika fyrir þá sem
þurfa á hagkvæmum stöflunarkerf-
um að halda fyrir lagerrými eða
frystiklefa. Róbótinn, sem getur flutt
allt að 1.200 kg í senn á 0,67 sek/m,
er hluti af Maxipacker, nýju og bylt-
ingarkenndu djúpstöflunarkerfi frá
sænska fyrirtækinu EAB, sem vakið
hefur verulega athygli beggja vegna
Atlantsála fyrir aukið rekstrarhag-
ræði.
Eins og hannað fyrir frystigreymslur
„Að mínu mati er um mjög spennandi
kost að ræða fyrir þá sem vilja hag-
kvæmara, hraðara og öruggara rekstrar-
form fyrir vöru- eða frystigeymslur. Maxi-
packer er því eins og hannaður fyrir
frystigeymslur, þar sem nýting hvers fer-
metra og vinnuhraði skiptir verulegu máli
fyrir gæði vörunnar sem og rekstrar-
kostnað,” segir Pétur H. Pétursson,
sölufulltrúi vöruhúsalausna hjá SINDRA.
„Eins og alltaf þegar áhrifaríkar og vel-
heppnaðar nýjungar koma fram, er um
einfalda lausn að ræða, eða fjarstýrðan
róbót á stærð við venjulegt bretti, sem
flytur vörur eftir vörulínum á djúpstöflun-
arrekkum.”
Róbótinn sér um að flytja allt að 1.200 kg á 0,67 sek/m.
Vélmenni fyrir
vörugeymslur!