Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 134
132
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Bátasmiðja Guðgeirs
Kalmannsvöllum 2
300 Akranes
Sími: 431 1544
Fax: 431 5545
Veffang: www.perlas.is
Maron AK-20, einn af þeim bátum sem Bátasmiðja Guðgeirs hefur smíðað.
Reynsla, metnaður
og fagmennska
Bátasmiðja Guðgeirs var stofnuð í
maí árið 1999 af hjónunum Guðgeiri
Svavarssyni og Kristínu Ármanns-
dóttur. Guðgeir sem er húsa- og
skipasmíðameistari að mennt og
hefur rúmlega tveggja áratugatuga
reynslu í báta- og skipasmíði, vann
meðal annars tæp tíu ár hjá Þorgeiri
og Ellert ehf. á Akranesi Bátasmiðja
Guðgeirs er til húsa að Kalmanns-
völlum 2 á Akranesi.
Hjá fyrirtækinu starfa að meðaltali 5-7
manns, allt þrautþjálfaðir fagmenn með
áralanga reynslu í smíði og breytingum á
bátum. Má segja að þar fari saman mikil
reynsla, fagmennska og metnaður í þjón-
ustu við útgerðamenn.
„Við erum að smíða hraðfiskibát sem
heitir Perla,“ segir Guðgeir. „Hugmyndin
að þessum báti kviknaði árið 2000. Í
nóvember 2000 var fyrsta bátnum af
Perlu gerð, sem er 8 tonn að stærð,
hleypt af stokkunum hjá fyrirtækinu og
síðan hafa alltaf verið í smíðum nýjir bátar
samhliða viðgerðum og breytingum.
Stærðirnar af Perlunni, sem fyrirtækið
bíður upp á, er á bilinu 3,7 til 15 brúttó-
tonn að stærð og geta því allir fengið eitt-
hvað við sitt hæfi hvort heldur að mönn-
um vanti nýjan bát eða vanti að láta lag-
færa eða breyta gamla bátnum.“
„Við hjá Bátasmiðju Guðgeirs kapp-
kostum að sinna viðskiptavinum okkar
frá fyrsta degi, og erum ávallt reiðubúnir
að svara hvers konar fyrirspurnum sem
upp kunna að koma í ferlinu,“ segir Guð-
geir að lokum.
13
90
.3
3
Prentari fyrir PC og MAC
hugbúnaður fylgir
Öflug merkivél fyrir
mikla notkun
Merkivél fyrir heimili
og fyrirtæki
N ý b ý l a v e g i 1 4 , K ó p a v o g i . S í m i 5 5 4 4 4 4 3 . w w w. r a f p o r t . i s
MERKIVÉLARMERKIVÉLAR