Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Side 7

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Side 7
hafði oft seinar hættur, gekk enn daglega að verki, þótt hann liefði þrjá um nírætt. En hann reis úr rekkju um það bil, sem aðrir menn skammlífari ganga til svefns og notaði morgunstund- irnar til fræðiiðkana. Félagsmál og fagrar bókmenntir voru kærusl lesning hans. Þegar ég heimsótti hann síðast, var hann að lesa á frummálinu þá skáldsögu, sem á þeim mispirum var mest í tísku um hinn enskumælandi heim, og við höfðum varla fyr heilsast en hann tók að ræða af eldmóði kjarna þessa rits. Þótt hann hneigðist að ýmsum' kenningum öðrum fremur var hanri maður hleypidómalaus, óbundinn kerfum og skólum, og sannaðist á honum, að fáir liafa viðari sjóndeildarhring og við- feldnari menntun en gáfaðir sjálflærðir alþýðumenn. Mér er sagt, að hann hafi sem bókavörður alið menn þannig upp til lesturs, að senda þeim þær bækur, sem hann taldi hvern og einn mann fyrir í svip, en smáþyngdi lesninguna eftir þvi sem honum þótti skjólstæðingnum fara fram að viti og þekkingu. Honum ber að þakka flestum fremur að vart getur það hérað á íslandi, þar sem alþýðan hefur á valdi sínu meiri almenna þekk- ingu en Þingeyingar, enda er upp úr þeim jarðvegi, sem hann ræktaði, mikið mannval sprottið, og hefur Þingeyjarsýsla sett meiri svip á þjóðlífið á síðustu áratugum en flest héruð önnur utan Reykjavík. Með Benedikt frá Auðnum er hniginn einn af okkar merkilegustu menningarfrömuðum. H. K. L. Um skógrækt. Um síðustu aldamót hófst allmikil skógræktarstarfsemi hér á landi. Þótt undarlegt megi virðast, var það eingöngu fyrir á- huga tveggja danskra manna, að starfsemin hófst. Sæmundur Eyjólfsson hafði að vísu vakið menn til þess að hugsa um af- leiðingar skógarskemmda fyrri alda og tekið mönnum vara fyrir áframhaldandi rányrkju. Greinar lians í Búnaðarriti Hermanns Jónassonar voru sem rödd hrópandans i eyðimörkinni, en því miður entist lionum ekki aldur til þess að sjá fyrstu framkvæmd- ir skógræktar, því að hann andaðist 1896. En það voru Dan- irnir Ryder sjóliðsforingi og prófessor Prytz, sem hófu starf- semina hér árið 1900. C. E. Flensborg, sem nú er forstjóri Heiða- félagsins danska, annaðist allar framkvæmdir hér undir stjórn þessara manna fram til ársins 1907, er landssjóður tók skóg- ræktarmálin algerlega i sinar hendur og skipaði Kofoed-Hansen 5

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.