Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Side 102
92 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ekki hægt að greina fíílana eftir þessum lyklum, og ekki bætir úr skák, þegar myndir vantar af þeim flestum, eins og í umræddri bók. En höf. skal njóta þess sannmælis, að hann er ekki einn um þessa sök, því að flestir flóruhöf- undar hafa til skamms tíma klykkt út með þessu fíflamori. En ég hefði bara búizt við, að höf. væri upp úr slíku vaxinn, þar sem hann er bæði erfðafræð- ingur og fíflafræðingur. Þær fáu hræður, sem hafa gaman af að fást við þessar fallegu jurtir, liafa ekkert gagn af þessum flórulyklum, en verða hvort eð er að leita í ritgjörðir fíflafræðinganna, sem eru þeim alveg óskaðlegar, þótt hiifundar þeirra séu oftast ólærðir grasafræðingar (amateur). Að endingu Krómósómtölur („litþráðatölur") eiga alls ekki heima í flórum (Anthox- anthum bls. 63, Plantago maritima bls. 244), enda er ekki minnzt á aðrar en þessar tvær! Það færi betur á, að tegundalyklar væru hafðir með alls staðar, jafnvel þótt ekki séu nema tvær tegundir í ættkvíslinni, og þá ekki síður, þegar fleiri eru (Bromus, Lepidium, Ribes). Hitt er galli og óþarfa ósamræmi að láta þá vanta sums staðar. Hvers vegna höf. tölusetur allar tegundimar, en notar það að engu, er ekki gott að vita. Það væri ólíkt auðveldara að finna lýsingu tegundarinnar, sem hefur verið greind, ef talan stæði við nafnið í lyklinum (sbr. starirnar, sem eru 40). Það bætir ekki úr skák. að röðin á ættkvíslunum í hverri ætt og tegundunum í hverri ættkvísl er ekki sú sama sem í lyklinum og virðist ekki vera farið eftir neinum ákveðnum reglum með það. Nafnalistarnir eru mjög ófullkomnir. í engum nafnalistum er hægt að finna stör eða aðrar tegundir, ef maður man bara latneska nafnið; það er ekki ann- að að gera en að fletta í gegnum alla ættkvíslina. í engum nafnalista er hægt að finna svo þekkt plöntuheiti sem draumsóley, augnfró eða smára. Nei, maður verður að gá að melasóley, ólafsaugnfró, hvítsmára eða einhverju slíku. Svo vantar tilfinnanlega fræðiorðasafn. Höf. hefur einhvern „íðorðakafla“, sem ég hef ekki athugað nákvæmlega, en þó blaðað dálítið í. Þessi „íðorða- kafli“ er að minnsta kosti mikil afturför frá fræðiorðaskýringum Flóru íslands, ekki sízt vegna þess, að höf. virðist nota ýmsar glósur, sem ekki eru skýrðar í þessum kafla (t. d. bleðlótt, rykkirennd) og ekki er hægt að búast við, að byrj- endur þekki. Það er ekki hlaupið að því að slá upp fræðiorðum, sem mann vantar, jafnvel þótt þau séu skýrð þarna. Það ætti að vera nóg komið af dæmum til að sanna, að ég fer ekki með fleipur, þegar ég segi, að bókin sé ónothæf og skaðleg byrjendum. Til sönn- unar staðhæfingum mínum um stuldi úr Flóru íslands og þýðingar úr Norsk Flora eftir Lid ætla ég að leggja eitt eintak af umræddri bók á Landsbóka- safnið, þar sem strikað er með rauðu og svörtu bleki undir það, sem tekið er úr þessum bókum, eftir því sem ég hef fundið. Geta menn þá sjálfir borið saman. Það mun varla ofmælt, þó sagt sé að bók þessi hljóti að verða vonbrigði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.