Tímarit Máls og menningar - 01.05.1947, Blaðsíða 73
LÝÐRÆÐI
63
og leggja fram vísindalega rökstuddar tillögur um nýtt fyrirkomu-
lag þjóðfélagsins, J)ar sem útrýmt yrði örbirgð og misrétti, krepp-
um og styrjöldum og mannkyninu í heild sköpuð skilyrði til ham-
ingjusælli, menningarfyllri og siðgæðisríkari tilveru. Þeir sýna fram
á, að auðæfi jarðar séu svo mikil og framleiðslutækni manna löngu
komin á svo hátt stig, að hver og einn af tveimur jnilljörðum jarð-
arbúa gæti lifað við alls nægtir, ef verðmætunum væri réttlátlega
skipt. Þessir menn eru stundum nefndir sósíalistar, en stundum
kommúnistar, og hið nýja skipulag, sem Jjeir boða, heitir sósíal-
ismi á fyrra stigi sínu, en kommúnismi á hinu síðara og fullkomnara.
Er nú ekki þessum tillögum umbótamannanna vel og vinsamlega
tekið af öllum öðrum meðiljum samfélagsins? Eru þær ekki íhug-
aðar af gaumgæfni og ræddar af góðvild og sanngirni, taka ekki
forystumenn sérhvers þjóðríkis sig til og athuga sem vandlegast,
hversu nýtilegar þær mundu reynast, og er ekki rannsakað af sér-
stökum áhuga samfara vísindalegu hlutleysi, hvernig þetta skipulag
hafi gefizt þar í landi, sem framkvæmd þess hefur Jíegar verið
hafin? Er það ekki leiðtogum Jjjóðanna dásamlegt fagnaðarerindi,
að takast skuli mega á tiltölulega skömmum tíma og með tiltölulega
auðveldum hætti að útrýma meginhluta þeirrar ógæfu, sem heim-
inn Jjjakar, og veita öllu mannkyni alls nægtir fæðis, húsnæðis,
skæða, klæða og annarra efnahagslegra gæða? Og er ekki hið nýja
skipulag löngu komið á um öll lönd jarðar? Þannig spyr heilbrigð
skynsemi.
Öllum þeim spurningum verður að svara neitandi, eins og kunn-
ugt er. Boðendum hins nýja samfélags frelsis, jafnréttis og bræðra-
lags var ekki tekið tveim höndum af ráðamönnum ríkjandi þjóð-
skipulags. Ofsókn var hafin á hendur þeim, þeir voru rógbornir,
smánaðir, svívirtir, læstir í fangelsi, hraktir í útlegð, ósjaldan lagð-
ir á píslarbekk eða teknir af lífi, en annars beittir hinu andlega of-
beldi fjármagnsins og áróðurstækjanna J)ar í löndum og Jjá á tím-
um, er líkamlega ofbeldið var ekki lengur í tízku. Og hið mikla
verklýðsríki í austurvegi, þar sem hafin var framkvæmd þessa nýja
skipulags, — á það var engan veginn litið með samúð eða vísinda-
legu hlutleysi af ábyrgðarmönnum hins gamla Jjjóðfélags, heldur
hatri og fullum fjandskap, þangað voru sendir innrásarherir þrá-