Tímarit Máls og menningar - 01.05.1947, Blaðsíða 99
SAGA VESTMANNAEYJA
89
stíl hennar þannig liáttað, að naumast getur verið um annað en flýtisverk að
ræða. Nóg dæmi um þetta eru fyrir hendi, en hér er ekki rúm til að ræða það
frekar. Mál er víða dönskuskotið, og virðist það vera fyrir áhrif frá hinum
fornu heimildum, sem margar hverjar eru á óvönduðu máli, eins og kunnugt
er. Þannig notar höf. sem nafnorð: enskir, engelskir, íslenzkir, danskir o. s. frv.
í stað Englendingar o. s. frv. Af öðrum dönskuslettum má nefna orð og orða-
tiltæki eins og læring, reyfa (reyft allar Ve.), hertekning, vera við líði, deyði
(sem höf. hefur tekið slíku ástfóstri við, að hann notar ekki annað orð yfir
þá athöfn). Víða er kansellístíll á málfarinu, enda eru höf. mjög hugleikin
orðin greindur, nefndur og téður. Rangar orðmyndir notar höf. allvíða; sumt
af því kunna að vera prentvillur, en eru þó helzt til þrálátar til þess. Má þar
nefna: tenæringur, beykirnar, læknirinn (þolf.), Kleyfar, Ofanleyti, leyfar,
eyði fyrir eiði, röggvísi, seyði o. fl.
Orðfæri hefði yfirleitt mátt vanda hetur.
Nafnaskrána hef ég litið lauslega yfir, en þó ekki prófað hana með sam-
anburði, og hef ég rekizt á þessa ónákvæmni: Andrés Sveinsson, vantar bindis-
tölu, Bóel Jensdóttir er á tveimur stöðum, en á öðrum talin Jónsdóttir. Stafar
þetta sýnilega af því, að höf. hefur prenlað upp þessa röngu feðrun úr Sýslu-
mannaæfunum (IV. bindi, bls. 559), og er hún þó leiðrétt neðanmáls. Brekk-
hús fyrir Brekkuhús, Deadman á að vera Doodman, Erna Halldórsdóttir á að
vera Halldórsson, Flaktir á að vera Flagtir, Gunnar Ólafsson lögfræðingur er
talinn alþingismaður, hvað hann aldrei hefur verið, og er einnig nefndur Jóh.
G. Ólafsson sýslumaður, Herluf Kjartan Bryde á að vera Herluf Ingjald, Jón
Hinriksson kaupfélagsstjóri og útvegsmaður er sami maður, Jón Hreinsson
formaður og frá Brandshúsi er einn og sami maður, Jón Magnússon skipstjóri
og útvegsmaður er sami maður, Klemmer á að vera Kemmer, Skellur á að
vera Skellir, Skúli hefur fallið úr skránni, Utha á að vera Utah. Ósamkvæmni
er mikil. Sumir eru titlaðir, aðrir ekki, við suma skýringar og ættfærslur o. s.
frv. I skrána vantar Krúger, sem mun eiga að vera Krieger.
Hér að framan hefur eingöngu verið dvalið við galla þá, sem ég tel vera á
þessu riti, og athugasemdir gerðar við þá. En að sjálfsögðu ber einnig að geta
þess, sem vel er um það. En höfuðkostur ritsins er sá, að höf. hefur dregið
saman á einn stað geysilega mikið efni, og auðsælega lagt mjög mikla vinnu
í að gera ritið sem rækilegast. Handritasöfn virðist hann liafa kannað af mik-
illi kostgæfni, og miklu hefur hann safnað af munnlegri geymd, sérstaklega
að því er snertir atvinnuhætti 19. aldarinnar.
Jóh. Gunnar Olajsson.