Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Qupperneq 43
HVERS VEGNA ÉG BÝÐ MIG FRAM
33
sem eiga allt undir bandarískri aðstoð. Tveggja flokka blökkin var
ekki sköpuð til að gegna þessu neyðarkalli. Hún var sköpuð til að
halda áfram utanríkismálastefnu á grundvelli haturs og ótta. Blökk-
in var sett saman af mönnum, sem voru andvígir viðnámi gegn
fasismanum, sem komu hjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna í hel,
sem brugguðu Sameinuðu þjóðunum fjörráð með samningu Tru-
mans-kenningarinnar, og sniðgengu Sameinuðu þjóðirnar með
Marshall-áætluninni. Samsteypustjórn gæti verið ákjósanleg, ef hún
hefði umboð allrar þjóðarinnar. En tveggja flokka blökkin er ekki
víðtæk samsteypa. Hún er aðeins fulltrúi fámennrar, en voldugrar
eiginhagsmunaklíku. Hún fyrirlitur sögu og erfðavenjur þjóðar
vorrar og tengir Bandaríkjamenn við afturhaldssinna og harðstjóra,
sem bera ekki snefil af virðingu fyrir amerískum hugsjónum.
Vér getum ekki haldið inn á braut raunverulegra framfara heima
og erlendis, fyrr en Bandaríkjamenn hafa vísað tveggja flokka
blökkinni og allri móðursýkinni, sem hún veldur, á bug. Milljónir
Bandaríkjamanna vita þetta núna. Miklu fleiri munu skilja það,
þegar þeim eru sýndar staðreyndirnar. Astæðan til að ég hefst
nú handa, óháður blökkinni, — er að ég vil veita þessum Banda-
ríkjamönnum hinn lýðræðislega rétt sinn til að velja.
Stefna vor í alþjóðamálum
Þegar ég var varaforseti, og aftur eftir
komu mína frá Evrópu í maí 1947, bar ég fram víðtæka áætlun um
aðstoð við aðrar þjóðir. Ég er ekki og hef aldrei verið einangr-
unarsinni. Ég var stuðningsmaður Marshall-áætlunarinnar áður en
Marshall-áætlun var til. en það var áætlun til að sameina þjóðirnar,
ekki til að sundra þeim.
Ég hef haldið því fram, að aðstoð ætti að veita á vegum alþjóða-
samtaka í því skyni að auka framleiðsluna. Ég hef alltaf mælt með
flutningsbílum, ekki skriðdrekum, — plógum, ekki byssum. Ég hef
mælt með alþjóðlegri skipulagningu með aðstoð vísindalegra sér-
fræðinga til að auka framleiðslugetu heimsins.
Sumir þeirra sömu afturhaldssinna, sem kölluðu þetta heimsku,
styðja nú hina hættulegu aðstoðaráætlun stjórnarinnar. Þeir vilja
hafa aðstoðina pólitíska og undir gerræðislegri stjórn. Þá langar
3