Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Blaðsíða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Blaðsíða 11
TÍMARIT MÁLS OG MENNIXGAR RITSTJÓRAR: Kristinn E. Andrésson og Jakob Benediktsson Marz 1949 1. hefti Þetta hefti Tímaritsins er helgað eingöngu þjóðvarnarmáli íslendinga. Nokkrir œttjarðarvinir kveðja sér enn hljóðs, á tólftu stundu, til að vara þjóðina við þeim háska sem búinn er nú lífi hennar og menningu. Svonefnt varnarbandalag atlantshafsríkja er í smíðum, nærri fullhamrað. Það þykir ekki stofnhæft nema ísland sé með. Gerir það landfræðileg lega þess, mik- ilvæg í hemaði. Hér á að gera virki, mikil og öflug, þaðan er hefja megi árásir á þjóðir Evrópu. Hér eiga að vera flugstöðvar, herskipalægi og hergagnabúr. Agimd Bandaríkjastjómar á Islandi hefur eigi linnt síðan 1945. Þá krafðist hún þriggja herstöðva til 99 ára, þorði þó ekki annað vegna mótmæla þjóðarinnar en slaka á kröfum sínum — í bili. Þrjátíu og tveir alþingismenn er brugðust trúnaði íslendinga og eiðstaf sjálfra sín bera sök á því að Bandaríkin komu máli sínu að verulegu leyti fram, fengu flugstöð í Keflavík til 61/-; árs og héldu föstu tangarhaldi á landinu. Það gerðist hinn minnistæða dag, 5. okt. 1946. Með þeim degi hófst ógæfa íslands. Með atlantshafssáttmálanum er ekki verið að krefjast þriggja herstöðva, heldur landsins alls, ekki verið lengur að biðja um ákveðnar stöðvar, heldur eiga íslend- ingar að gerast sjálfir hernaðarþjóð, ísland að verða aðili í ófriði stórvelda, eitt peðið fyrir framan kónginn, eitt af útvirkjunum sem á að fóma í næstu árásar- styrjöld auðvaldsins. Eftir að ísland hefði gerzt aðili að slíkum sáttmála er ekki á valdi íslenzkrar ríkisstjórnar að ráða yfir landi vom, heldur lyti það erlendri yfirherstjóm. Allt mun gert til að villa þjóðinni sýn um raunverulegt innihald þessa sáttmála. Hann er sagður til vemdar og öryggis en er hvorugt. Hann er vafinn í blekkingar, gerðar vitandi vits. Algert bann hefur verið í útvarpi og blöðum tveggja stjómar- flokka (og hins þriðja til hálfs) við hverri rödd er dirfzt hefur að andmæla því að ísland gerist hemaðaraðili og víki frá hlutleysisstefnu sinni, og mótmæli félaga og funda til alþingis hafa ekki fengizt flutt í þingfréttum útvarpsins. Frjáls fréttaflutningur er ekki lengur til í landinu. Við liggjum gersamlega undir ein- ldiða brezkum og amerískum áróðri. Þjóðinni á ekki að gefast neinn tími til að átta sig. Hún verður ekki spurð hvort henni líkar samningurinn betur eða verr. Eftir fregnum að vestan hefur Bandaríkjastjóm mælt svo fyrir að alþingi íslendinga skuli hafa samþykkt hann 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.