Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 16
6
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ara, þýsku fasistunum, að þeim væri hollara að hafa fallbyssur gegn
þýskum verkamönnum og útlendum verklýðsríkj um en smjör handa
sjálfum sér, alt væri til vinnandi ef takast mætti að brjóta niður
sósíalista; önnur kenníng þeirra var sú að alt sem héti menníng væri
í ætt við bolsévisma, og skylt að mæta því með því að draga upp byssu-
hanann; það var því ekki furða þó höfuðafrek þessarar staurblaunku
og afsiðuðu þýsku borgarastéttar undir fasismanum í baráttunni við
verklýðsstefnu heimsins yrði það að fæða gasofnana. Veröldin stynur
enn undir afleiðíngum þeirra verka sem rúin borgarastétt Þýskalands,
berskjölduð fyrir miskunnarlausum áróðri auðvaldsins, fékk til leiðar
komið, valdatöku þýsku fasistanna undir Hitler árið 1933, en með
henni var í raun réttri önnur heimsstyrjöld hafin.
Satt er það, munurinn á efnaðri og alslausri borgarastétt, saddri og
svángri, er mikill, og nægir að benda á það að borgarastétt flestra ann-
arra landa fékk með aungvu móti skilið grimd þýskra stéttarsystkina
sinna gegn alþýðuhreyfíngunum, kenníngin um fallbyssurnar og smjör-
ið verkaði á franska og eingilsaxneska borgara eins og ósmekkleg
skrýtla og þó var þeim enn fjær skapi kenníng þýsku borgarastéttar-
innar um nauðsyn þess að draga upp hanann á skammbyssunni ef
menníng heyrðist nefnd, gasofnastarfsemi þýskra borgara var borgur-
um flestra annarra landa bókstaflegur viðbjóður, þeir skildu ekki
hvernig fátækt og forréttindamissir fær gert fallandi yfirstétt í verkum
sínum óæðri mannætum og villidýrum; franskir og eingilsaxneskir
borgarar tóku meira að segja sjálfir þátt í stríðinu gegn hinum vitfirta
hernaði þýsku borgarastéttarinnar og héldu síðan dóm yfir helstu for-
íngjum hennar að stríðinu loknu og heingdu þá.
En nú hefur í síðasta stríði geingið svo af millistéttum Evrópu yfir-
leitt, að þær eru orðnar móttækilegar fyrir svipaðan áróður gegn
verklýðsstefnu heimsins, sósíalismanum, kommúnismanum og Ráð-
stjórnarríkjunum, einsog þann sem Hitler og félögum hans tókst með
aðstoð auðvaldshrínganna þýsku að efla uppúr heimsstyrjöldinni fyrri.
I þetta sinn er það borgarastétt gervallrar Vesturevrópu sem á að
egna til nýrrar heimsstyrjaldar, en auðhríngar Bandaríkjanna fyrir-
skipa áróðurinn og segjast síðan ætla að taka að sér fjárhagshlið
stríðsins þegar búið er að siga evrópsku borgarastéttinni á verkalýð
heimsins. Nú skal Hitlers, Mússa, Kvislíngs og Lavals verða hefnt.