Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Page 17
.ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ' 7 Nú skal sú villa Vesturevrópu og Ameríku leiðrétt, að hafa ekki mar- sérað á móti Sovétríkjunum einsog Hitler vildi í síðasta heimsstríði. Það er til marks um ofurkapp auðvaldsins í þetta sinn, að þar sem borgarastétt Hitlersþýskalands vildi ekki aðeins vinna til að missa smjörið ofanaf brauðinu sínu, þá eru borgaralegar ríkisstjórnir víðs- vegar um Evrópu fúsar til að afnema fullveldi landa sinna og útrýma því þjóðernisstolti sem verið hefur fjöregg margra þessara þjóða um þúsund ára skeið og sumstaðar leingur. Hallvarður Lángi brýst út úr samfélagi norrænu þjóðanna og býður auðhríngum Ameríku nákvæm- lega það sama sem Vidkun Kvisling vildi bjóða og bauð auðhríngum Þýskalands, alt til þess að sigrast á róttækri verklýðsstefnu í heiminum, og þarmeð er Noregur og Francóspánn orðnir bandamenn í kross- ferðinni gegn kommúnismanum — enda eiga báðar þjóðirnar Noregur og Spánn sammerkt í því að hafa ekki að éta og varla ígángsklæði utaná kroppinn. Og þó Hallvarður Lángi viti vel að Kvisling og Ter- boven eyddu sjöttahluta af öllum þjóðarauði Noregs í „krossferðina gegn bolsévismanum“, þá er krossferðarandi hans gegn frelsurum Norðurnoregs svo sterkur að hann vill vinna til að afhenda afgánginn af auði Noregs og fullveldi Noregs í þokkabót, í von um að takast mætti að þjarma að Ráðstjórnarríkjunum í stríði því sem sálufélagar hans vestanhafs vona að fá að heya gegn þeim. Og með spori því sem hann steig á dögunum tókst honurn að þvæla hálfri Skandínavíu inn í stríðsfélagið, og liggur nú við borð að þrjú Norðurlandanna verði bundin aftaní stríðsvagn þann, okkur óvarðandi, sem Wallstreetbúar vilja umfram alt aka til Kremls — sömu leið og Hitler. Það er sagt að þá sem guðirnir vilji tortíma æri þeir fyrst. Sá „sáttmáli“ og „bandalag“ gegn alþýðu heimsins, og þó sérstak- lega skipulögðum verkalýð allra landa, sem auðvald Bandaríkjanna er nú að basla við að þrýsta uppá ýmis ríki í Norður-, Vestur- og Suðurevrópu er allra hluta ólíklegastur til að sameina evrópuþjóðir amerísku auðvaldi þó ýmsir valdamenn amerískir haldi svo vegna stjórnmálavanþekkíngar sinnar fullkominnar, en hún er í augum evrópumanna eitt af helstu séreinkennum Ameríku, sprottin af „splend- id isolation“ þeirra á liðnum tímum og þarafleiðandi reynsluleysi í utanríkismálum og skilníngsleysi á öðrum þjóðum. Ymsir vitrustu áhrifamenn Bandaríkjanna, og síst lakari talsmenn auðvaldsins en

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.