Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 18
8
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hinir, þarámeðal einginn minni spámaður en Mr. Walter Lippmann,
hafa í ræðu og riti varað valdamenn Bandarikjanna við að taka þá
háskalegu stefnu að þrýsta hinum og öðrunr borgaralegum ríkisstjórn-
um, sem eru aðeins í mjög takmörkuðum skilníngi fulltrúar þjóða
sinna, inní hernaðarbandalag þar sem aðiljar standa svo ójafnt að
vígi, bandalag þar sem annar hefur ekki annað að leggja fram en líf-
tóruna á móti peníngum liins. Með afli auðs, vopna og áróðurs getur
auðvaldsríki einsog Bandaríkin auðveldlega þrýst hræddum og ístöðu-
lausum ríkisstjórnum aðframkomins kapítalisma í Evrópu til að takast
á hendur á pappírnum æfintýralegar skuldbindíngar gegn rísandi verk-
lýðsstefnu sérhvers lands og gegn úngum voldugum ríkjum, sem borin
eru uppi af lífstrú, siðferðisþreki og sigurmætti í mestu löndum heims-
ins; slíkt „hernaðarbandalag“ Wallstreets við evrópukapítalismann er
álíka viturlegt og sigurstránglegt einsog ef auðugur og glaðlyndur sæl-
keri byði grátandi hreppakellíngu karlægri að gánga með sér í félag
til að fara að skutla hvali. Slíkar aðferðir kynni að vera hægt að hafa
við Evrópu ef íbúar álfu vorrar væru álíka stj órnmálalega ólæsir og
íbúar venjulegs þorps í miðvesturríkjum Bandaríkjanna, en almenn-
íngur Evrópu skilur altof vel hvað í húfi er, hvað svo sem evrópskir
leppar ameríska auðvaldsins láta hafa sig til að undirskrifa í Washing-
ton. Það er ljóst að þeir fulltrúar auðvaldsins vestra sem bera fram
kröfurnar á hendur evrópuríkjunum um hernaðarbandalag skilja bók-
staflega ekkert af því sem hefur verið að gerast í heiminum í þessari
kynslóð. Þeir eru haldnir því barnalega hugarástandi fyrri tíma að
ímynda sér að mál sé hægt að leysa með styrjöld í heiminum nú á dög-
um, en slíku getur einginn maður leingur trúað nema vanþroska
einstaklíngar sem lesa indíánasögur einsog sjö ára börn og unna
skothríð. Og nú að síðasta heimsstríði nýloknu kalla þeir evrópska borg-
arastétt til baráttu við verkalýð heimsins með nákvæmlega sömu rök-
semdum og Hitler, Franco og Vidkun Kvisling: frjálshuga verkalýður,
nýlenduþjóðirnar, allir þeir sem gáfu líf sitt fyrir baráttuna gegn fas-
ismanum í því stríði sem var að enda, öll frelsisbarátta mannkynsins
fyr og síðar, allir mannvinir heimsins sem lifað hafa og dáið fyrir
úrhelsisbaráttu lágstéttanna — alt eiga þetta að vera útsendarar djöf-
ulsins samkvæmt fagnaðarboðskap Atlantshafssáttmálans. Einsog Ev-
rópa hafi ekki heyrt þessa speki fyr! Ekkert af þessu óráði hefur til-