Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Blaðsíða 19
.ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ'
9
ætluð áhrif á stjórnmálalega þroskaðan verkalýð Evrópu, hann heyrir
aðeins með undrun og hrolli að þeir sem heingdir voru í Niirnberg eru
geingnir aftur fyr en varði — og farnir að tala með amerískum hreim.
Og jafnvel sjálf borgarastéttin í Evrópu, þó rúin sé bæði fjárhagslega
og siðferðilega, þeir flokkar manna sem fyrst og fremst á nú að siga
einsog hundum í fíflslegt alsherjarstríð gegn verkalýð heimsins, þeir
munu ekki heldur nema að nokkru leyti láta glepjast af þessu barna-
lega vopnumstudda hjali um enn eina „krossferð gegn kommúnisman-
um“; þeir hlusta að vísu á áróðurinn, en hræddir og hikandi; þeir
vita af reynslu Þýskalands og „atlantshafsríkja“ Hitlers hvað slík bar-
átta kostar og hvert hún leiðir.
Því verður ekki leynt hve mjög viðhorfin hafa breyst í heiminum
síðan Hitler stofnaði til síðustu krossferðar gegn verklýðsstefnunni
eða „bolsévistum“ einsog hann og Göbbels nefndu alla hverju nafni
sem nefndust, ef þeir voru á móti þeim, þarámeðal Roosevelt forseta.
Þegar Hitler hóf stríð sitt taldist t. d. ekki einn maður í Ítalíu tilheyra
verklýðsflokki, nú eru þar milli tíu og tuttugu miljónir kjósenda sem til-
heyra verklýðsflokkum, þaraf átta miljónir kommúnista. í miðevrópu-
löndum frá Eystrasalti til Balkans réðu fasistiskar eða hálffasistiskar
ríkisstjórnir fyrir tíu árum og öll verkalýðshreyfing var í löndum þess-
um bæld niður. Nú eru ríki þessi öll orðin verklýðsríki að meira eða
minna leyti þó þeim sé að vísu ekki stjórnað með ráðstjórnarfyrir-
komulagi. Franski verkalýðurinn stendur sem einn maður á móti
stríði við hin austrænu verldýðslýðveldi, og forustuflokkur verkalýðs-
ins þar í landi, kommúnistar, er stærsti flokkur Frakklands; og þeir
sem kunnugir eru í Einglandi segja að þar sé einnig ógerníngur að æsa
upp verkalýðinn til stríðs hvernig sem auðvaldsblöðin hamist. Þó hafa
kraftahlutföllin milli verklýðsafla og auðvaldsafla breyst enn meira
í Asíu, þar sem Japan, eitt öflugasta auðvaldsríki heimsins er í rústum,
hernumið svæði; Indland, Burma og Indókína ýmist hafa brotið eða
eru að brjóta af sér nýlenduviðjarnar, svo og Indónesía, en Kína
stærsta ríki heimsins í raun réttri orðið verklýðsríki sem er að þurka
út síðustu leifar af herjum kapítalismans í landinu.
Enda er sú raun á að þraungvun evrópiskra ríkja inní hernaðar-
bandalag við Ameríku gegn sósíalismanum hefur slegið þverbrest í alt
þjóðlíf álfu vorrar, klofið í tvent sérhvert land, klofið sérhverja þjóð,