Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 29

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 29
ER HERVERND ÁN HERSETU MÖGULEG? 19 fyrir flugsprengjur. Síðasta atriðið er ákaflega þýðingarmikið frá hernaðarfræðilegu sjónarmiði. Þegar Þjóðverjar höfðu í síðustu styrj- öld fullgert flugsprengjur sínar, sem þeir skutu á London, lögðu Bretar alla áherzlu á að finna „start“-brautirnar og eyðileggja þær. Skeyti þessi þurfa afar langar „start“-brautir, sem erfitt er að fela. Ollum þykja slíkar brautir betur komnar annars staðar en í þéttbýlu heima- landinu. í augum stórþjóða er ísland óbyggt land að kalla, þó að hér búi rösklega 100 þús. hræður. Jafnframt býður það upp á ful.lkomn- ustu hugsanleg skilyrði fyrir risavaxna herstöð. Skyldi nokkurt stór- veldi, sem hefði fjárhagslegt bolmagn til, láta bjóða sér það tvisvar, að taka slíkt land undir „vernd“ sína? Amerískur auður, amerísk tækni geta breytt eyjunni í vígi, sem standast myndi allar árásir, jafnvel þótt stórvirkustu vopnum eins og kjarnorkusprengjum og risaflugsprengj - um yrði beitt. Auk þess hefur landið óviðjafnanleg skilyrði sem stökk- pallur árásarvopnanna. Aðeins eitt veldi í heiminum er svo auðugt að fé, tækni og vopnum, að geta reist þetta tröllaukna virki: Bandaríki Norðurameríku. Og við biðjum um vernd þeirra, bjóðum þeim heim, leggjum hólmann fram með glöðu geði, til þess að stofnun Atlants- hafsbandalagsins skuli ekki stranda á því, að „ísland og Portúgal ger- ist ekki meðlimir bandalagsins þegar frá upphafi,“ eins og Ólafur Thórs hefur fregnað. Skyldu Bandaríkjamenn þá lengur hika, úr því að þeir geta þarna sameinað líkn við umkomulausa þjóð og eflingu eigin hervarna? Það er óskadraumur bandaríska herforingjaráðsins að breyta Islandi í ósigrandi virki, í eina samstillta vígvél, í ómælisstórt flugmóðurskip, sem ekki getur sokkið, en ber vopnafarm miljón skipa. Þá væri því tryggð yfirráðin á Atlantshafi um aldur og ævi, og Banda- ríkin hæri ægishjálm yfir hvert herveldi heimsins. Þannig lítur hin raunverulega hervernd út, séð frá sjónarmiði vernd- arans: Setuliðsvernd, helóttalíf íslenzku þjóðarinnar í skugga óvígra virkja. Hervernd án hersetu er í rauninni ekki til, hún er hugsunarvilla, blekking. Hervernd án hersetu væri aðeins loforð, garantý, pappírs- plagg. Er vernd á pappírnum meira virði en hlutleysisyfirlýsing? Vissu- lega ekki! Á vernd án hersetu trúir enginn, hvorki sá sem lofar henni, né hinn sem biður um hana. En hvernig ber þá að skilja hátíðlegar yfirlýsingar vissra stjórn-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.