Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 34

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 34
24 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR að búa þannig að þeim, að þeir sæju sér engan kost annan en verða við ósk, sem þó væri öllu fremur dulbúin skipun, þeirra yfirvalda, sem þá réðu lögum og lofum í landinu. Það leikur enginn vafi á, að herbækistöðvar hér þýða raunverulega uppgjöf sjálfstæðis Islendinga og íslenzk yfirvöld yrðu þá aðeins lepp- ar hinna amerísku. Kem ég nú að því meininu, sem mest tekur í, en það er læpuskapur íslenzkra forystumanna. Harla ólíklegt virðist að þeir menn, sem óðfúsir vilja veita erlendu stórveldi þau ítök, sem það á hverjum tíma kann að telja sér nauðsynleg, unni ættjörð sinni né skilji að „vér höfum hér nokkuð að verja“. Þótt Keflavíkursamningurinn hafi gefið svo slæma raun sem al- kunnugt er og það svæði, sem amerískir ráða hér þyki smánarblettur á íslenzkri jörð, verður þó ekki annað séð en að allmargir af forystu- mönnum vorum hafi enn ekkert lært né skilið og séu landsréttindin enn sem fyrr útbær, ef þau eru föluð af nógu fínurn herrum. Eg tala nú ekki um, ef í boði er gullið rauða, samanber orðin: „Við mund- um koma svo fjárhagslega sterkir út úr því.“ Þeir forystumenn íslenzku þjóðarinnar, sem láta stjórnast af rót- gróinni braskhneigð, snobbi, undirlægjuhætti og algjörðu skeytingar- leysi um þjóðerni vort, tungu og menningarerfðir, ættu sem skjótast að fá lausn í náð og hverfa á brott til „vina“ sinna. Raunar þörfnumst vér helzt herverndar gegn slíkum mönnum. Auk „heiðursins“ af því að fá að vera með í Atlantshafsbandalagi þessu kann þægðin við erlenda valdamenn að hafa í för með sér ein- hvern sýndargróða, svo sem háar leigur fyrir landsréttindi, aukna at- vinnu o. s. frv. Eða þá hreinar og beinar gjafir, sem tæpitungulaust yrðu nefndar mútur. Þeir menn, sem veitt hafa Mammoni átrúnað sinn og alla hollustu mega ekki við meiru, þeir sefjast svo af ljóma amer- íska gullsins, að þeir eru allir þar sem hann skín, og skeyta því ekki hót þó aðeins sé um stundarhag að ræða, eða jafnvel aðeins sýndar- hag, en raunverulega sé verið að stofna til skuldar, sem þjóðin verður að gjalda með sjálfstæðri tilveru sinni. Einhuga og fagnandi stofnuðum vér íslendingar lýðveldi fyrir tæp- um fimm árurn og þá var mikill vorhugur og vakning með þjóðinni. Vér treystum á yfirlýsingu vora um ævarandi hlutleysi og væntum þess að vér, eftir ófriðarlokin, fengjum að búa hér óáreitt og læra af

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.