Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Síða 40
30
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
um þeim siðferðisgrundvelli sem vér höfum staðið á um aldir. Á það
var bent í ræðu og riti, að dvergþjóð sem segir skilið við hlutleysi sitt,
gerir samning um hernaðaraðstoð við stórveldi og skipar sér þannig
framarlega í fylkingu járngrárra trölla, er ekki sjálfráð lengur né
frjáls og getur hvorki vænzt hlífðar né réttar, ef tröll og jötnar draga
sverð úr slíðrum og taka að berjast. Sú fullyrðing helztu foringja
stjórnarliðsins að þátttaka í Atlantshafsbandalagi mundi stórauka ör-
yggi vort, ef á skylli ófriður, hefur verið marghrakin, því að í síðustu
styrjöld sýndi það sig þráfaldlega að árásir voru þar tíðastar og spjöll
geigvænlegust sem mestur var herbúnaður. Dylgjum sömu manna um
að Rússar kynnu að ásælast ísland, ef það væri óvíggirt, hefur verið
hnekkt með þeim augljósu rökum, að floti Breta og Bandaríkjamanna
sé allsráðandi á Atlantshafi og geri slíka ásælni af Rússa hálfu ger-
samlega óhugsandi. Loks hefur verið sýnt fram á, að ef Íslendingar
teldu öryggi sínu ógnað og þættust þurfa verndar við bæri þeim að
biðja Sameinuðu þjóðirnar ásjár.
Þegar stjórnarliðinu varð Ijóst að andstaðan gegn fyrirætlunum þess
óx með degi hverjum, greip það slíkur ótti við rökræður að það vílaði
ekki fyrir sér að afnema fréttafrelsi útvarpsins, til þess að koma í veg
fyrir að þjóðin öll fengi vitneskju um skorinorðar mótmælasamþykktir
funda og félaga víðsvegar á landinu. Jafnframt tók áróður þess miklum
stakkaskiptum. Nú þóttist það aldrei hafa talið nauðsynlegt að hafa
hér herstöðvar og vígbúnað á friðartímum, enda yrði fyrirhugað At-
Iantshafsbandalag einungis stofnað til að tryggja kærleik og göfgi í
samskiptum þjóða. Sumir smærri spámenn tóku jafnvel að sér að
sanna, að Jesús Kristur mundi tvímælalaust hafa lagt blessun sína yfir
inngöngu vora í Atlantshafsbandalag, hefði hann verið á lífi um þess-
ar mundir og búsettur á íslandi. Síðan hófu ráðherrar vorir utanferðir
eins og höfðingjar á Sturlungaöld og gáfu sér tóm til endalausra við-
ræðna um margnefnt bandalag í fjarlægum borgum, meðan íslenzka
ríkið beið fjárlagalaust og helztu lífsbjargartæki þjóðarinnar, togar-
arnir, lágu bundin við hafnarbakka. Erlendar útvarpsstöðvar skýrðu
frá því fyrir skömmu að stofnriki Atlantshafsbandalags mundu undir-
rita sameiginlegan sáttmála í Washington í fyrstu viku aprílmánaðar,
en þvínæst mundi Bandaríkjastjórn gera sérsamninga við hvert ríki í
bandalaginu um vopnabúnað og landvarnir. Föstudaginn 11. marz