Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 60
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Þessi tvö ríki eru nefnd af því — eins og Blackett tekur fram — að
öhugsandi er að önnur ríki en þau mundu nota kjarnorkuvopn í stríði
á næstunni. Nú telur Blackett sennilegt að Rússar hafi eignazt a. m. k.
tiokkrar kjarnorkusprengjur í síðasta lagi 1953, eða með öðrum orðum
áð lengur sé ekki hægt að gera ráð fyrir stríði þar sem aðeins annar
áðilinn noti kjarnorkuvopn. Hins vegar má telja víst að Ráðstjórnar-
Hkin þyrftu nokkur ár til þess að koma sér upp þeim forða af kjarn-
órkusprengjum sem nægja mundi til stríðsreksturs. Að þessu athuguðu
télur Blackett óhugsandi og tæknilega vonlaust að Rússar gætu gert
virka kjarnorkuárás yfir Atlanzhaf fyrir 1960, þó að þeir hefðu slíkt
í hyggju. Blackett sýnir á hinn bóginn fram á að það sé með öllu
ósénnilegt að Rússar hafi nokkrar slíkar fyrirætlanir á prjónunum,
(ramar öllu vegna þess að þeir hafi engin tök á að fylgja slíkri árás
eftir með landher sem gæti gengið á land í Ameríku. Jafnvel þótt Rúss-
ar réðu yfir allri Evrópu væru þeir engu nær því marki að geta sent
lierlið til Ameríku. Sprengjuárás á amerískar borgir af þeirra hálfu
Væri því hernaðarleg glópska, sem gæti aðeins orðið til þess að sam-
eina allar aðrar þjóðir gegn þeim, — alveg á sama hátt og árás Japana
á Pearl Harbour varð þeim í rauninni til glötunar, þó að hún heppn-
áðist hernaðarlega. En Japanar gátu ekki fylgt henni eftir, svo að
árangurinn varð aðeins sá að stæla bandarísku þjóðina til varnar og
gagnsóknar.
Aftur á móti telur Blackett Bandaríkjamenn hafa slíka aðstöðu að
meiri hætta sé á að þeir noti kjarnorkusprengjur gegn Rússum, heldur
én öfugt. Auk þess að þeir hafa ennþá einkaumráð yfir kjarnorkuvopn-
•úm, bendir Blackett á tvær röksemdir: 1) Bandaríkjamenn hafa beinar
herstöðvar eða aðgang að þeim víðs vegar kringum landamæri Rússa
óg svo nærri þeim að þaðan er hægt að gera loftárásir á ýmis mikilvæg
fússnesk iðnaðarsvæði og borgir. Okkur íslendingum til uppbygging-
ár má geta þess að hann telur Island til þessara herstöðva og bendir á
að þaðan sé hægt að ráðast á Leningrad. 2) Bandaríkjamenn hafa
greinilega viðurkennt gereyðingar borga sem eðlilegar hernaðarað-
gerðir, og loftfloti þeirra er útbúinn og samsettur með slíkar árásir í
huga. Fjöldi bandarískra hernaðarsérfræðinga hefur auk þess haldið
þessari skoðun fram, bæði fyrr og síðar.
Herstöðvar fjarri landamærum sjálfra sín en nærri landamærum