Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Page 67
:SAMSÆRIÐ GEGN MANNKYNINU
57
inn vinnandi vegur að verjast slíkum árásum. Göring lýsti yfir því í
stríðsbyrjun að engri óvinaflugvél yrði hleypt inn yfir landamæri
Þýzkalands. í stríðslokin lágu þýzkar borgir í rústum.
Dettur nokkrum í hug, að Bandaríkjamenn leggi meira kapp á að
verja þessa úthafseyju en Þjóðverjar kappkostuðu að verja land sitt?
Við getum gengið að því eins vísu og nóttinni eftir daginn í dag, að
í næstu styrjöld, ef hún verður, yrði Reykjavík og aðrir íslenzkir bæir,
sem lægju í námunda við herstöðvar Bandaríkjamanna, lítið annað en
grjóthrúgur og brunnið spýtnarusl, fjöldi fólks myndi bíða bana, at-
vinnuvegir stöðvast meira eða minna og ástandið í landinu verða
hörmulegra en orð fá lýst.
Hvers virði er þá „hervernd“ Bandaríkjanna?
í bókstaflegasta skilningi einskis virði.
Verri en einskis virði, því að hún yrði til þess óumflýjanlega að
hrópa andstæðinginn yfir landið.
7. „En Bandaríkin taka landið, hvort sem við viljum eða viljum
ekki. Og þess vegna ar bezt að komast að samningum við þau.“
Við vitum fyrirfram hvernig þeir samningar verða, og við vitum
líka, hvernig þeir verða haldnir.
En er þetta ekki að gera Bandaríkjamenn að of vondum mönnum?
Er ekki ranglátt að ætla þeim, sem alls staðar eru að berjast fyrir
frelsi og lýðræði og vinna gegn ofbeldi, að þeir beiti okkur því gerræði
að hertaka land vort á friðartímum gegn mótstöðu þjóðarinnar? Ég
vona, að þeir séu þeir heilindamenn, að þeir geri það ekki, ef þjóðin
rís gegn því. Annars yrðu allir íslendingar að hætta að trúa því, að
Bandaríkjamenn séu að berjast fyrir frelsi og lýðræði og vinna gegn
ofbeldi.
Hitt er allt annað mál, að við yrðum að sætta okkur við að vilji
okkar lyti í lægra haldi, ef til styrjaldar kæmi. Það er gömul hefð.
En það er dálítið annað að ganga í hernaðarbandalag og örva til
ófriðar með því að bjóða land sitt fram til mikilvægra herstöðva og
gerast þátttakandi í stórglæp, sem nefnist árásarstríð, — það er meira
að segja allt annað en að sætta sig nauðugur við það hlutskipti, að
landið yrði hernumið, ef styrjöld skylli á.
Einblíndu þig ekki sjónlausan á upphafið. Gefðu endalyktunum líka
svolítinn gaum. Það er enganveginn óhugsandi, að svo geti farið, að