Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 74

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Side 74
64 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR' í hæsta lagi leyfður suðrá Reykjanesi áníngarstaður fyrir útlenda góðgerðaflokka; þeir sóru við land, þjóð og sögu, sóru við alla þái guði og helga dóma sem þeir sögðust trúa á; sóru við móður sína; þó sóru þeir fyrst og síðast við heiður sinn. Og um leið vissi ég að nú hafði það gerst. Torgið fyrir dögun Ugla er komin aftur suður og hittir ófeimnu lögregluna úti á götu snemma morguns og fær þau tíðindi að um nóttina hafi agentarnir knúið samninginn fram. á alþingi. Svo við erum seld? sagði ég. Já seisei, landsréttindin eru farin, altílagi með það. Reykjanes á að vera sérstakur hvíldarstaður fyrir góðgerðaleiðángra sem fara vestrum og austrum. Og hverjir sögðu já, spurði ég. Þú ert valla það barn að þurfa að spyrja að því, sagði hann. Auð^ vitað sögðu föðurlandshúrrararnir já. Þeir sem sóru við móður sína? spurði ég. Dettur þér í hug að nokkrir aðrir vilji selja landið okkar? sagðí hann. Og fólkið? spurði ég. Auðvitað skipuðu þeir okkur í lögreglunni að hafa til táragasið og annað sælgæti handa fólkinu, sagði hann. En fólkið gerði ekki neitt. Fólkið er börn. Því er kent að glæpamennirnir búi við Skólavörðustíg en ekki Austurvöll. Það linast kanski í þeirri trú stund og stund, en þegar stj órnmálamenn eru búnir að sverja nógu oft og húrra nógu leingi, þá fer það að trúa aftur. Fólk hefur ekki ímyndunarafl til að skilja stjórnmálamenn. Fólk er of saklaust. Já ég vissi sosum hvar komið mundi þegar þeir fóru að sverja fyrir norðan í sumar, sagði ég. Alt smávegis er hætt að koma flatt uppá mig.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.