Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Blaðsíða 14
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON:
r
Ur dagbók mahatma Papýli
Fyrír elleju, árum, er Þórbergur Þórðarson var á siglingu til út-
landa, sendi hann mér ejtir beiðni afrit af nokkrum blöðum úr
dagbók sinni og voru þau œtluð til birtingar í Rauðum pennum,
en það jræga rit var þá lagt niður sama ár, og sú er sök til að dag-
bókarblöðin komust ekki á prent, en hafa legið hjá mér síðan. Dag
einn fyrír sextugs afmæli Þórbergs fór ég að líta yfir þau aftur og
sá hver fjársjóður lá þar grafinn, og fékk ég leyfi höfundar til að
birta úr þeim stuttan kafla og lœt fylgja með til skýringar bréf frá
Þórbergi, er hann sendi um leið og dagbókarblöðin.
Kr. E. A.
Elskulegi vinur!
Þú hefur oft verið að setja út á það við mig, að ég skyldi vera að hreinskrifa
handrit mín. Ég myndi ekkert bæta mig á þessum bölvuðu hreinskriftum hvort
sem væri. Þetta er kannski rétt hjá þér. Nú sendi ég þér afrit af nokkrum blöðum
úr dagbók mahatma Papýli. Þau eru öll skrifuð eins og mér komu þau fyrst í
hug, sum á kamrinum á kvöldin, sum þegar ég lá upp í loft í rúminu mínu, áður
en ég fór að sofa, sum standandi eða gangandi hér og þar, — öll með eldflýti,
ekkert hreinskrifað. Þú mátt birta þetta í Rauðum pennum, ef þig langar til.
Þetta er stfll, sem ég hef aldrei látið á prent áður í lengra máli. Hann heitir dag-
bókarstfll.
Með ástarkveðju.
Kaupmannahöfn, 21. sept. 1938.
Þórbergur Þórðarson.
Mánudaginn 15. ágúst.
Það er sunnudagur, stundum kaldi, sólskin fram til hádegis. Dregur
upp svarta bliku að sj'á í Holland. Þykkur eftir klukkan þrjú. Regn
klukkan níu til tíu í kvöld. Sjór eggsléttur.
í dag höfum við verið að skrönglast suður með austurströnd Skot-
lands: gulir fjörusandar, sævarhamrar, nes og bugtir, vitar. Bak við:
ávalar hæðir, sléttar grundir, grunnir dalir, dimmgrænir akrar, þorp,