Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Blaðsíða 88
150
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
varpsumræðu á þingi. var það ýmist orðið skammbyssa með spenntan
gikk eða rýtingur í hrygg á Sámi frænda. Og þegar þessi sami utan-
ríkisráðherra mælti á sína málhöltu ensku í Washington 5. apríl síðastl.
og hafði allan hnöttinn að áheyranda, þá var þessi skammbyssa eða
rýtingur orðinn svo mikils háttar, að valdið mundi geta úrslitum urn
öryggi landanna við Norðuratlanzhaf. Utanríkisráðherranum þótti
allt sitt ráð mjög valt, ef þetta kjörvopn Atlanzhafsins fyllti ekki vopna-
skemmu Bandaríkjanna. En hvort ísland er skammbyssa eða rýtingur
-— það fer eftir því í hvora áttina utanríkisráðherrann horfir. Þetta er
eins og í samkvæmisleik: hvort viltu heldur vera byssa eða rýtingur?
Og Bjarni Benediktsson vill vera byssa, vegna þess að henni er miðað
í austurátt.
Nú eru þeir dagar löngu liðnir, er hlægileg skáld sungu um það í
sínum barnaskap, að eyjan hvíta ætti sér enn vor ef fólkið þyrði. Vor-
dagar skammbyssunnar hefjast ekki fyrr en hleypt er af henni. Fram-
tíð skammbyssunnar er að duga sem bezt til mannvíga og fara síðan
í deigluna með öðru brotajárni að loknu lífsverki. Og það er ekki að
efa, að orð hins íslenzka utanríkisráðherra á skammbyssunni hafa vakið
mikinn fögnuð í herráði Bandaríkjanna. Herra Bjarni Benediktsson
hlýtur að njóta þar þeirra vinsælda, sem hann hefur farið á mis við
heima í föðurlandi sínu. Hinn raunsæi og vígsvitri utanríkisráðherra
þarf ekki að gera sér neinar rómantískar tálsýnir um það, að hann sé
riddari í þjónustu hinnar björtu drottningar á Atlanzhafi. Nei, hann
gætir aðeins einnar smábyssu á þessu útskeri í umboði Bandaríkjanna.
Hann lofar Ólafi Thors, formanni Sjálfstæðisflokksins, að leika ridd-
arann, sem stendur vígbúinn við fald Fjallkonunnar og heggur loftið
með vinstri hendinni meðan hann skrifar undir sölusamninginn með
þeirri hægri. Herra Bjarni Benediktsson veit það sem sé vel, að Thors-
ættin skipar svo háan sess í borgaralegu þjóðfélagi á íslandi, að venju-
leg blygðunartilfinning þykir þar ekki kurteisi.
Þær hugmyndir sem utanríkisráðherrann gerir sér um ísland og
stöðu þess eru mjög fjarri því að vera frumlegar. Hver óþveginn
bandarískur blaðasnápur hefur túlkað þessar hugmyndir utanríkisráð-
herrans árum saman. í hugskoti Bandaríkjanna er ísland ekkert annað
en landfræðilegur punktur, mældur í flugstundum frá ströndum Ame-
ríku. ísland er aðeins einn af mörgum slíkum landfræðilegum punktum