Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Blaðsíða 131
/-----------------------------------------------------—>>
Ennþá eru nokkur eintök til aí
Alexanders sögu mikla
Gelin út aí Halldóri Kiljan Laxness
Þýdd aí Brandi ábóta Jónssyni
Höfundur Alexanders sögu er Frakkinn Galterus,
jafnan talinn með mestu skáldum og lærdómsmönn-
um tólftu aldar í Evrópu. Kviða hans um Alexander
er talin ort í kringum 1170.
Halldór Kiljan Laxness segir í formála fyrir útgáfunni:
„Eg held allir, sem unna íslenzku máli, muni fagna útgáfu
þessarar bókar og njóta þess, eins og ég hef löngum gert,
að heyra í henni niðinn af uppsprettum tungunnar_“ —
„ ... Við Islendingar getum verið stoltir af því að hafa smíð-
að upp úr hinu forna verki íslenzkan skartgrip, og eiga hann
enn sem nýjan á tuttugustu öld, jafngildan eða gildari en
hann var í fyrstu, jafn fagran eða fegri...“ — „ ... Þessi
forni skartgripur, mótaður af íslenzkri snillingshendi úr skír-
asta góðmálmi evrópskra miðalda, hefur geymzt í launhirzlu
Sögu lítt snertur og ómáður um allar þessar löngu aldir, og
kemur hér alnýr fyrir augu vor í dag.“
Alexanders saga mikla er gefin út með sama sniði
og Fagrar heyrði eg raddirnar og Leit eg suður til
landa. Hún kostar 20 kr. ób., 30 kr. í rexín og 50
kr. í skinnbandi.
Þeir félagsmenn, sem hafa ekki ennþá eignazt Alex-
anders sögu, ættu að senda okkur pöntun sem fyrst.
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
Laugavegi 19 . Reykjavík
V_______________________________________________________>