Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 9

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 9
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Grímsstaðaholti, eða uppi í Hlíðum, eða inni i Kleppsholti, nei við skulum hætta. En þessi tilraun var sem sagt gerð fyrir nokkrum árum. Og síðan hafa þeir haldið áfram að gera tilraunir, bæði þessir, og líka þeir hinir. Við höfum heyrt í þeim drunurnar, þyngri og þyngri, til skiptis, vestan frá Nevada og austan frá Síberíu. Ennfremur hafa þeir nú gert sér eld- flaugar sem farið geta heimsálfanna á milli á örskammri stund og komið nákvæmlega niður á þann stað sem sendandinn kynni að telja sér mestan hag í að sundra og brenna í atómeldi. Mannkyninu hafa verið færðar heim órækar sannanir fyrir því að kjarn- orkudauðinn þyrfti ekki lengur að ferðast í flugvélum sem kannski yrði hægt að skjóta niður. Hann mundi ferðast með eldflaugum sem engin leið yrði að skjóta niður. Það yrði ekki lengur með neinu móti fyrir- byggt að kjarnorkudauðinn kæmist á sinn ákvörðunarstað. Og samt, — samt lesum við það í blöðum bæjarins í gær, að forustu- menn tveggja af stuðningsflokkum núverandi ríkisstjórnar telji það óráð og ábyrgðarleysi að vísa hinum bandaríska her burt af landinu, því að við megum ekki missa vernd hers- ins. Vernd!!! Abyrgir íslenzkir stjórnmálamenn leyfa sér sem sagt enn að tala eins og þursar út úr bjargi, blaðra um vernd í sambandi við þessa hersetu. Á ég að segja ykkur hvernig hún hófst þessi margrómaða vernd? Ég get nefnilega borið persónulegt vitni um það, því að strax þann morgun sem opinbert hernám landsins hófst af nýju, hinn 7. maí 1951, fór ég sem blaðamaður suður á Keflavíkurflug- völl til að fregna um viðbúnaðinn. En eins og menn muna, þá fékk þjóðin ekkert að vita um það sem til stóð fyrr en þennan sama morgun að hið nýja hernám var orðið að veruleika, og var þeirri launung haldið af varúðar- ástæðum og vegna ríkrar ábyrgðartil- finningar stjórnarvaldanna, eftir því sem þáverandi forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar, því að ella hefði hinn rauði óvinur kannski fengið spurnir af málinu og jafnvel getað verið búinn að hernema okkur áður en Bandaríkjamenn kæmu sinni vernd í framkvæmd. En hver var þá viðbúnaðurinn? Hver var verndin? Þrjú til fjögur hundruð bandarískir hermenn höfðu verið fluttir með flug- vélum til Keflavíkurflugvallar, og þegar ég kom þangað suðureftir, voru þeir á þönum milli ryðbrunninna bragga frá síðasta stríði, með teppi og kodda. Þeir ætluðu sem sé að hefja verndina með því að leggja sig. Enda voru þeir þreyttir eftir ferðalagið, og auk þess blánefjaðir og bersýnilega með kuldahroll í skrokknum, því að þennan morgun var hann býsna hvass 199
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.