Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 23
AMERISKIR ENDURFUNDIR hneigíngu undirkontórista og frí- merkjasleikjara til að leika Cæsar þegar þeir eru komnir út yfir þrösk- uldinn í þrældómshúsinu. Vestislaus maður með hendina í buxnavasanum, bögglaðan hatt og hálftugginn vindil í munnvikinu, dálítið þjakaður af önnum, jafnvel ekki laus við að vera útþrælkaður á svipinn, og oft í meira lagi hirðulaus í tali og hátterni, er lík- legri til þess að vera aðalforstjóri í margföldu stóriðjufyrirtæki eða bánkasamsteypu en virðulegur stór- borgari af því tagi, sem sjá má spóka sig með hátíðlegu látbragði og tignar- svip á borgargötum Evrópu. Eftilvill liggur þetta ekki sízt í því að í Amer- íku er ekki til sérstakur klæðaburður fyrir heldri borgara, heldur gánga all- ir jafnt í búðarfötum. Gerð þessa klæðnaðar er söm handa verkamanni og miljónamæríngi. Það er líka mjög sjaldgæft að hitta fyrir verkamann í Ameríku, sem setji upp umkomu- leysissvip eða ólundar af því honum finnist hann standa lágt í þjóðfélags- stiganum. Konur vel stæðra manna eru eftilvill sú stétt Bandaríkjanna sem ekki er of önnum kafin að vinna fyrir sér, þær láta oft mikið á sér bera á almannafæri, eru mentaðar á sinn hátt og mikill frumhreyfill samkvæm- islífsins. Evrópumönnum þykir und- arlegt að þessar heldrikonur eru líka vanalega klæddar í búðarflíkur sem fara misjafnlega vel og ekki væri lík- legt að evrópiskar stéttarsystur þeirra mundu kunna við. En þó þessar konur séu ekki alténd bundnar við áþreifan- leg störf, þá eru þær oft einkennilega þreytulegar og teknar, einsog þær nytu oflítillar hvíldar, sjaldan eða aldrei sællegar í framan, hendurnar á þeim eru oft þreytulegar og ellilegar þó þær séu tiltölulega úngar, þær eru oft í vaxtarlagi líkar fátækum konum sem leggja hart að sér við vinnu. Ætli það sé óróinn og erillinn í lífsháttum sem þessu veldur? Sé gerður saman- burður á kvenmönnum í Ameríku og Sovétrússlandi, þá er það undarlegt í landi einsog hinu síðarnefnda, þar sem alt kvenfólk leggur meira eða minna hart að sér við vinnu, jafnvel erfiðisvinnu, þá eru konur þar miklu sællegri í útliti, holdafari og fóta- burði en amrískar konur sem lifa við hóglífi. Þegar ég dvaldist hér áður fyr, var aðalmismunur á lífskjörum manna milli þeirra sem voru atvinnulausir og afgángsins af þjóðinni. Á tímabili voru miljónir atvinnulausra manna í þessu alsnægtalandi. Þessi ógurlegi mannfjöldi, sem hafði varla til hnífs og skeiðar af því einginn vildi nýta vinnuafl hans, skapaði hér óviðun- andi ástand og gerði þjóðfélagsmálin að höfuðvandamáli. Þetta var líka á dögum hinnar þjóðfélagslegu skáld- sögu í Bandaríkjunum. Ástandið gerði alla hugsandi menn að ein- hverju leyti róttæka í þjóðfélagsmál- um í þá daga. Þjóðfélagslegum um- 213
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.