Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 57
RÖGNVALDUR FINNBOGASON Ræða jlutt á þingi Heimsfriðarráðsins í Colombo á Ceylon 13. júní 1957 erra forseti, kæru vinir! Ég er hingað kominn frá íslandi. Vér íslendingar erum fámenn þjóð, teljum að- eins eitt hundrað og sextíu þúsundir. Engu að síður eigum vér ríkan menningararf, er stendur djúpum rótum í sögunni. Allir þeir, sem til þekkja norrænnar menningar og þjóðsagnafræða munu bera því vitni. Þessi menningararfur vor knýtir oss þó ekki við liðna og dauða fortíð, því að í nafni þessa menningararfs vors fordæmum vér íslend- ingar kjarnorkuvopn og hernað þjóða í milli. Það er í nafni menningararfs vors, sem vér krefjumst þess, að friður verði haldinn, krefjumst frelsis þeim þjóðum til handa, er búa við kúgun og ánauð og vér gerum það í þeirri fullvissu, að án frelsis verði í heiminum hvorki frið né hamingju að finna. íslendingar eru friðsöm þjóð. Vér höfum engan her og höfum aldrei farið með hern- aði á hendur öðrum mönnum. Enginn mun með samþykki þjóðar vorrar halda úti her í landi voru, jafnvel þótt sá her sé sagður þar eingöngu í varnarskyni, því að krafa vor um frið er reist á siðferðilegum rökum, en ekki á hverfulum viðhorfum líðandi stundar. Það gleður mig því að hitta fyrir hér á Ceylon friðsama menn, er eiga sömu viðhorf sem vér til þessara mála. Það er von mín, og ég er þess reyndar fullviss, að sú stund sé upp runnin í sögu vor manna, að vér látum í verkum vorum stjórnast af virðingu fyrir sammannlegum siðgæðis- hugsjónum. Ef vér einungis fáum afstýrt styrjöld, þar til þessi vaknandi meðvitund er orðin að lifandi veruleik með þjóðum heims, þá kann svo að fara, að óbornar kynslóðir muni telja, að árvekni vor, dómgreind og hugrekki hafi orðið heilladrjúg mannkyn- inu á örlagastundu í sögu þess. En takist oss eigi að svipta burt þeim skugga ófriðar, sem nú grúfir yfir þjóðum heims, þá höfum vér gjörzt sekir um það böl, er falla mun á komandi kynslóðir. Minnumst þess, hver skylda hvílir á oss. Vér verðum að vinna alþýðu heimsins griða, svo að hún geti gert þeim, er með völd fara, ljósan vilja sinn — kröfu sína um frið. Því skulum vér strengja þess heit að berjast dyggilega fyr- ir því, að þeim griðum verði náð. fslenzka þjóðin skoðar það hlutverk sitt að knýja ríkisstjórn sína til að afþakka lengri dvöl amerískra herflokka í landi sínu. Að ]fk- indum væri þessu marki þegar náð, ef ekki hefðu spurzt hryggðartíðindin frá Ung- verjalandi á s.l. ári. Verði enn skarað fast- ar að glóðum ófriðar í heiminum en orðið er, treysti ég því, að alþýða heimsins muni þekkja sinn vitjunartíma og tryggja mann- kyni frið, löngu áður en rödd þeirra vöku- manna, sem hér eru saman komnir, verður hljóðnuð. Hún verður aðeins að bera gæfu 247
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.