Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 63

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 63
ÞORF GREINARGERÐ sér uppgjöf í baráttunni um hug- myndir. Það er hægt að hafa mis- munandi heimspekiskoðanir og aðr- ar hugmyndir um Jsróun menningar- lífs, án þess að leggja borgir í rúst, skipuleggja uppreisnir, senda njósn- ara í annarra lönd eða ausa hinn að- ilann svívirðingum. Meðal þeirra eðl- isfræðinga sem fyrir tveimur árum ræddu friðsamlega nýtingu kjarn- orku voru áreiðanlega menn með næsta ólíkar skoðanir á stjórnmál- um. Möguleikar á samvinnu meðal þeirra hafa samt í för með sér ný tækifæri, ekki aðeins fyrir þroska vís- inda, heldur einnig fyrir velferð allra þjóða. Heimsókn Moskvuballettsins og Pekingóperunnar færa út sjón- deildarhring margra enskra og franskra manna. Þær heimsóknir auðguðu anda þeirra og reginmunur þessara tveggja heima hindraði þær ekki. Ég fagna því ekki síður en bréfritari minn að svo margar ágæt- ar sögur vestrænna höfunda eru þýddar hér. Ég er sannfærður um að við höldum áfram að þýða megin- verk erlendra höfunda, jafnvel þó að þau séu í verulegum atriðum frá- brugðin okkar. Málverkasýningar frá Indlandi, Frakklandi, Belgíu og öðr- um löndum hafa verið haldnar í Moskvu; fólki leizt vel á sum mál- verkin, miður á önnur. En ef áhorf- andi horfir á landslagsmynd sem hrífur hann, er hann ekki að skoða hana til þess að geta brotið heilann um hvort málarinn sé hugsjónamað- ur eða efnishyggjumaður. Umræður um hugmyndakerfi og samningar stjórnarvalda eiga ekki heima á sama vettvangi. Kynni okk- ar af vísindum Bandaríkjanna, bók- menntum Breta, eða málaralist Frakka, mega ekki fara eftir því í hvaða skapi Dulles var þegar hann vaknaði, hvað Selwyn Lloyd sagði eða hvaða ráðherrar kunni að koma fram í Frakklandi og hvert þeir snúa sér. Eg er mjög hrifinn af mörgum nú- tímahöfundum Bandaríkjamanna, svo sem Hemingway, Caldwell, Faulkner, Steinbeck, Fast og Saro- yan. Mér þykir vænt um að margar af bókum þeirra hafa verið þýddar á rússnesku og að sovézkum lesend- um líka Joeir vel. Er mögulegt að við eigum þess vegna að hætta að berjast gegn kynþáttahatri af því að það er svo útbreitt í Bandaríkjunum, gegn hinum ómannúðlegu kenningum Vogts eða gegn nokkrum vísinda- mönnum eða rithöfundum sem að- hyllast hið úlfslega siðferði „frjálsr- ar samkeppni“? Ég met mikils mál- verk eftir Picasso, Matisse, Rouault, Marquet, Léger, Braque og marga aðra. Blind og vélræn eftiröpun sumra manna eftir Picasso og Braque hefur breitt út abstraktlist sem mér finnst ómannleg og sem ég ætla að berjast gegn. Ég met mikils marga franska rithöfunda í dag og geri hvað 253
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.