Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 73
ÞORF GREINARGERÐ skarð hæfileikanna með ótemjuhætti. Jesenín var umkringdur hóp ungra flysjunga. Og sviplausar óraunsannar sögur birtust í hundraðatali í Kras- naja níva. Mig furðar á léttúð þeirri sem ein- kennir dóma fólks um merkileg menningarmál eftir fyrirsögn tízk- unnar. í sumar heyrði ég sovézkan gagnrýnanda fella rangláta dóma um liðna bókmenntastarfsemi okkar; honum hafði skyndilega opinberazt að þær hefðu ekki verið neitt neitt og að við yrðum að byrja á byrjuninni að nýju. Nokkrir mánuðir liðu. Er- lendar fréttir dökknuðu í blöðunum. Þá stóð annar gagnrýnandi upp og hrópaði: „Allt var áður gott í sovézk- um bókmenntum, en nú er allt skyndilega orðið umbreytt.“ Ég er ekki að ýkja neitt. Ég las fyrir skömmu langa grein í Literatúr- naja gazeta eftir gagnrýnandann Zel- ínskí um Dag í Ijóðurn (Den’ poezíí), ágæta sýnisbók ljóðlistar sem allir ljóðaunnendur fögnuðu stórlega. Zel- ínskí segir, og meira að segja með skáletri, að í bók þessari „skynji hann samtímann illa“. Hann segir að ljóðin í bókinni sýni „ákveðnar til- hneigingar til lýsandi ljóðrænu og ljóðrænu yfirleitt.“ Þó verður sovézk menning, bæði fyrr og nú, og sovézk- ar bókmenntir allra sízt, ekki greind frá tilfinningu fyrir samtímanum. Það er ástæðulaust að æsast upp eða þeytast úr einum öfgunum í aðrar. Horfur oq túlkun Við skulum snúa okkur aftur að spurningunni um sósíaliska raun- hyggju. Það er rangt hjá Teplic að líta á hana sem listastefnu. Hún er lífsskoðun og hún getur varpað ljósi á hugsanagang listamanns, en hún má ekki hindra fjölbreytni í lista- stefnum, tegundum né formum. Við verðum að kunna að greina milli sósíaliskrar raunhyggju og mis- beitingu hugtaksins. Ef gagnrýnandi vildi áður gera lítið úr landslags- myndum Sarjans eða stillumyndum Kontsjalovskís, sagði hann að slíkar myndir væru andstæðar sósíaliskri raunhyggju, og hann skipaði þeim á bekk með olíuskrautverkum sem sýndu hvorki sósíaliskan skilning né raunhyggju. Við höfum séð hið sama í greinum og bókmenntum, og sumir gagnrýnendur áttu sér aðeins tvö mið: ef einhver bók hafði hlotið verðlaun, þá kölluðu þeir hana meist- araverk sósíaliskrar raunhyggju, og ef einhver bók fékk ekki slík verð- laun, meðhöndluðu þeir hana sem glæpsamlega og sökuðu höfundinn að hafa brotið hverja reglu sósíal- islcrar raunhyggju. Þetta sýnir ekki að lífsskoðunin sé röng, heldur að túlkunin er kreddu- bundin og jafnvel skrifstofubundin. Lífsskoðun manns hefur aldrei sett því takmörk hvað málað væri né hvaða listaaðferðum beitt er. Fra Angelico, Ucello og Masaccio, voru 263
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.