Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Side 51

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Side 51
„STÖKKIÐ MIKLA“ í KÍNA hægri menn héldu einatt fram þeirri kenningu, að „skrifstofuvaldið“ væri verra en kapítalisminn og þeir beittu sér gegn hinni nánu samvinnu Kína við Sovétríkin. Flokkurinn snerist hart við og tók upp mjög skelegga og óvægilega haráttu gegn þessum hægri mönnum eða endurskoðunarmönnum eins og þeir eru stundum kallaðir, einkum eftir að þeir fóru að draga í land með skoðanir sínar. Um allt Kína, á vinnustöðum og í skólum, voru haldnir ótal fundir til þess að kveða hægri mennina eða endurskoðunarmennina niður. Einkum kvað mikið að þessum fundarhöldum í háskólunum, en þar átti endurskoðun- arstefnan helzt fylgi að fagna, því allmikill hluti stúdenta er úr millistétt og yfirstétt og margir eru upprunnir úr menntamannaliði hins gamla Kína. Oánægjuraddir heyrðust um að þetta hefði tafið námið og gengi einatt langt úr hófi. Mjög sjaldgæft mun samt vera að heyra slikar kvartanir frá stúdent- um, sem upprunnir eru úr stétt bænda og verkamanna. Slíkt verður ærið hégómlegt og smátt í augum þeirra, sem hafa séð og skilið mikilleik þess, sem er að gerast í Kína. Eg spurði hvort þessar hægri kenningar hefðu haft mikinn hljómgrunn með þjóðinni. Mér var sagt að það væri síður en svo, hægri mennirnir væru og hefðu verið mjög einangraðir. Ég spurði þá hvort allur þessi gauragangur hefði verið nauðsynlegur. Mér var sagt að svo væri, án þessarar baráttu gegn hægri mönnum og endurskoðunarstefnunni hefði „stóra stökkið" ekki verið mögulegt. Því ef þessir undanhaldsmenn hefðu fengið að útbreiða kenningar sínar í friði, hefði það valdið hiki, þar sem mótstaðan er minnst og hlotið að spilla þeim algera einhug, hiklausu djörfung og eldmóði, sem nauðsynlegt sé til þess að skapa slík aldahvörf og nú eru að gerast í Kína. Eg held að Kommúnistaflokkurinn hafi notað uppsteyt hægri mannanna sem tækifæri til þess að hefja hugmyndalega sókn, fræða þjóðina um marx- ismann, ala hana upp í sósíaliskum anda og hervæða hana andlega í barátt- unni uin „stóra stökkið“. í erindi, sem ég hélt í heimspekideild vísindaakademíunnar í Peking, lagði ég mikla áherzlu á mikilvægi hins huglæga og meðvitaða þáttar mannsins í verðandi sögunnar. Ég hefði ekki getað nefnt neitt dæmi úr veraldarsögunni, er sannaði mál mitt jafnrækilega og það, sem ég sá í Kína. „Þegar hugmyndin nær tökum á fjöldanum, verður hún að efnislegu valdi,“ segir Marx. Það er einmitt þetta, sem hefur gerzt í Kína. Og hvílíkt reginafl. Til er kínverskt mál- tæki, sem hljóðar svo: „Þegar fólkið dregur andann, verður stormur, og þegar fólkið stappar niður fætinum, skelfur jörðin.“ Það er til vitnis um, að kín- 41
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.