Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 7

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN kjósendur eru af hjarlans sannfæringu andstæðir þrátt fyrir áróður og lýðskrum, er þegj- andi og hljóðalaust geymt „fram yfir kosningar". Þá er það barið í gegn, og þessi aðferð hefur þann mikla kost að auki að sannfæra kjósendur að þeir séu algjörlega máttlausir og áhrifalausir um stjórn landsins, gera þá skeytingarlausa og örlagatrúar í stjórnmálum. En þessir sömu stjómmálamenn sem þannig fara að tala nú gjarnan um að kommúnistar séu búnir að skapa pólitíska þreytu meðal almennings með „óábyrgri" stjórnarandstöðu! Það mun mála sannast að áróður borgaralegra málgagna sé ofbeldisfyllri á íslandi en jafnvel í flestum hreinum auðvaldsríkjum, nema ef vera kynni í Þýzkalandi. Til þess liggja reyndar eðlilegar ástæður eins og nú er málum komið. Ekki þær að illska borgarastéttar- innar sé meiri hér en annarsstaðar. Ekki heldur að hana skorti menntun á við borgara- stéttir annarra landa, jafnvel þó eitthvað kynni að vera til í því. Hinar raunverulegu ástæður eru þær, að þegar borgarastéttin íslenzka skuldbatt sig afturhaldi heimsins, arð- ræningjunum, heimsveldissinnunum, nýlendukúgurunum, vopnasölunum, þá gekk hún í berhögg við alla eðlilega stefnu íslenzkrar þjóðar, sjálfa lífsstefnu hennar, sveik allt það sem var rótgróið í fari Islendinga. Þessvegna er þörf jafn óheyrilegs áróðurs, annarra eins bolabragða, lymsku, hræsni og óhreinlyndis, að sambandið sem borgarastéttin hefur stofn- að til er hrópleg saurgun á allri sögulegri þróun hinnar íslenzku þjóðar. Með áróðrinum skal það barið inn í undirvitund þjóðarinnar, í trássi við allar stað- reyndir, að hún eigi samleið með fjendum sínum. Hinni fomu nýlenduþjóð á að innræta hrokafulla fyrirlitningu nýlenduveldanna á þeim þjóðum sem eru að stíga fyrstu spor sín á götu frelsisins, hina hræsnisfullu lognu mannúð heimsveldanna sem rámkar við sér ef rétturinn er látinn gilda um leppa þeirra og leiguböðla. Og þeir sem hver Islendingur vissi til skamms tíma að voru „níðingar", „hundingjar", og „þrælar" skulu nú lofaðir sem englar hins fullkomna réttlætis á jörðunni. Áróðursmeistararnir vita að ef þeim tækist til fulls að eitra þannig vitund þjóðarinnar, væri þeim auðveldari leikur að halda áfram á þeirri niðurlægingarbraut sem þeir hafa farið um sinn. Þeim mun ekki endalaust takast sú iðja. Og jafnvel þó þeim heppnaðist að framkvæma það fagnaðarerindi sitt sem þeir em nú famir að státa af: að hleypa inn í landið auðmagni amerískra eða þýzkra kapítalista, með viðeigandi pólitískum tryggingum, til að reyna að leggja á sjálfstæði íslands þann herfjötur sem ekki brysti aftur, þá mun það aðeins verða til þess að gera þeim syndagjöldin þungbærari þann dag þegar reiði þjóðarinnar fær mál og hendur. S.D. 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.