Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 25
SAGA VESTRÆNNAR ÍHLUTUNAR í KÍNA Þessi sérstaða íslands er okkur til lítillar sæmdar, því vel mætti draga af henni þá ályktun að í ríkisstjórn okk- ar væru meiri afglapar í utanríkismál- um, óheilli lýðræðissinnar, eða lítil- fjörlegri leppar Bandaríkjastjórnar en hinum Norðurlandaþjóðunum þykir hæfa að velja sér til forystu. Á þessu ellefu ára tímabili hefur aðstaða Bandaríkjanna til að meina Kína aðild að Sameinuðu þjóðunum orðið æ óhagstæðari. Sumpart hefur saxazt á það atkvæðamagn sem þau réðu yfir til þessa óþurftarverks (margar þjóðir hafa tekið þann kost að sitja hjá við atkvæðagreiðslur til að þurfa ekki beinlínis að ganga í ber- högg við heilbrigða skynsemi), að hinu leytinu hefur óhjákvæmileg þró- un leitt til þess, að fjölmargar fyrrver- andi nýlenduþjóðir hafa öðlazt at- kvæðisrétt innan samtakanna og beitt honum samkvæmt eigin sannfæringu og gegn vilja Bandaríkjanna. Á þingi Sameinuðu þjóðanna á síðastliðnu hausti féllu atkvæði þannig, að 42 voru á móti aðild Kína að samtökun- um, 34 með, og 22 ríki sátu hjá — þeii ra á meðal ísland. En jafnframt því sem „verndurum lýðræðisins“ hefur orðið óhægra um vik að verja afturhaldsstefnu sína fyr- ir lýðræðinu á þingi Sameinuðu þjóð- anna, hafa þeir gerzt æ umsvifameiri á öðrum vettvangi hin síðari ár: Þeir hafa hafið stórfellda áróðurssókn gegn Kínverska alþýðulýðveldinu og varið til þess öllum blaðakosti og út- varpsstöðvum sem þeir ráða yfir í hinum „frjálsa heimi“. í þessari áróð- ursherferð taka þátt einnig þeir, sem að nafninu til viðurkenna alþýðu- stjórnina, eða sitja hjá við atkvæða- greiðslur um aðild hennar að Samein- uðu þjóðunum; málgögn þeirra eru jafnvel enn ósvífnari í garð kín- verskra stjórnarvalda en sjálfir hús- bændur leppsins Sjang Kæ-sjeks. Það er eins og þeir þori nú fyrst að segja hug sinn allan, anonýmt, bak við blaðsnepilinn eða þulinn í útvarpinu. Kínverska stjórnin, segja þeir, er sam- safn kúgara og morðingja, sem láta sér ekki nægja að þrælka 670 milljón- ir Kínverja, heldur vilja bæta við Tíbetum og helzt öllu mannkyninu að Rússum meðtöldum; morðingjar sem skjóta úr fallbyssum á saklausar eyjar og bíða nú þess eins færis að kynda heimsbál þar sem helmingur mann- kyns færist í vetniseldi — svo að þeir geti að lokum drottnað yfir rústunum í krafti mannmergðar sinnar. Það er óþarfi að geta þess að Al- þýðublaðið og Morgunblaðið taka snerpulega undir þennan fordæming- aróð. Ég veit ekki hve mörg prósent blaðlesandi íslendinga kunna að hafa látið umturnast af þessum áróðri, en tímabært virðist að honum sé andæft með staðreyndum, úr því föng eru á þeim. Það kynni líka að vera að ís- lenzkum leppum yrði óhægra að tala tungum undan blaðsneplinum sínum 103

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.