Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 36
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR „Filipseyjar munu tilheyra okkur um alla framtíð .. . Og rétt handan við Filipseyjar eru óþrotlegir mark- aðir Kína. Við munum hvergi hopa . . . ekki afsala okkur réttinum til að rækja köllun kynstofns okkar, í um- boði Drottins, til framdráttar heims- menningunni . . . Það ríki sem ræður yfir Kyrrahafinu mun einnig ráða heiminum .. . Þetta ríki mun um ald- ur og ævi verða Bandaríki Norður- Ameríku.“ (Foster Rhea Dulles: China and America, the story of their relations since 1784, Princeton 1946). Hinsvegar voru Bandaríkin enn ekki nógu sterk til að einoka hina „ó- þrotlegu markaði Kína“, því voldugir keppinautar höfðu einnig náð þar fót- festu. Þeim tókst ekki heldur að gera Kyrrahafið að fullu að „bandarísku stöðuvatni“. Auk þess mætti heims- valdastefnan nokkurri andstöðu innan Bandaríkjanna sjálfra. Bandarísk stjórnarvöld fóru því hægt í sakirnar og beittu stjórnkænsku við undirbún- ing áforma sinna. Fyrsta skrefið var hin fræga stefnuyfirlýsing bandaríska utanríkisráðherrans Johns Hays 1899 um hinar „opnu dyr“ í Kína. Bandarískir ráðamenn, sem vanir eru að vefja skinhelgisblæju um allar sínar gerðir, hafa jafnan síðan látið í veðri vaka að þetta skref hafi verið stigið til að tryggja sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt Kínverja. Stað- reyndir sögunnar fletta ofan af þessari lygi. í yfirlýsingu Hays, sem hann sendi gömlu heimsveldunum, eru hvergi bornar brigður á rétt þeirra til yfirráða yfir þeim landsvæðum sem þau höfðu hrifsað til sín með valdi af Kínverjum né forréttindaaðstöðu þeirra. Hann krafðist þess eins af allir aðilar hefðu jafna verzlunaraðstöðu á „leigu“- og „áhrifasvæðum“ hvers annars (Owen Lattimore, bandarísk- ur rithöfundur, hefur hnyttilega skil- greint þessa stefnu sem „ég líka“-póli- tíkina). Bandarísk stjórnarvöld reikn- uðu dæmið þannig, að í krafti dollar- ans myndu Bandaríkjamenn auðveld- lega ná viðskipta- og fjármálaítökum um allt Kínaveldi; keppinautarnir yrðu kúgaðir fjárhagslega, og síðar yrði þá auðvelt að hnekkja einnig veldi þeirra á pólitískum og hernaðar- legum sviðum. En Kínastjórn var að sjálfsögðu ekki spurð um það, hvort hún æskti þess að opna „dyr“ sínar eða loka þeim. Þau stórveldanna sem voru hernað- arlega sterk en stóðu fjárhagslega valtari fótum, voru andsnúin þessari nýju stefinu. En Bretland studdi hana vegna þess, að það var enn forvsturíki auðvaldsins og hélt að hún myndi þrengja áhrifasvæði keppinautanna Rússlands, Frakklands, Þýzkalands og Japans — en auka viðgang Breta sjálfra. I rauninni var þessi stjórnar- stefna undirbúin sameiginlega af Bandaríkjamönnum og Bretum; báð- ir reyndu að koma ár sinni sem hag- anlegast fyrir borð, en að sjálfsögðu 114

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.