Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 51

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 51
SKALDIÐ væri miðsumar, og um gráleitan himininn flugu tveir hegrar með miklum arn- súgi, og allt þetta var miklu fegurra og fullkomnara en kvæði lærisveinsins og varð hann því dapur og fannst hann vera harla lítilmótlegur. Og þannig fór öldungurinn að hverju sinni, og að tveim árum liðnum var Han Fook næstum fullnuma í lúluleiknum, en ljóðlistin virtist honum æ erfiðari og háleitari. Þegar tvö ár voru liðin var unglingurinn gripinn ákafri þrá til að hitta aftur ættfólk sitt og unnustu sína og hann bað meistarann fararleyfis. Meistarinn brosti og kinkaði kolli. „Þú ert frjáls,“ sagði hann, „og getur haldið hvert á land, sem þú kýst. Þú getur komið hingað aftur, þú getur stað- næmzt heima hjá þér, alveg eins og þig lystir.“ Síðan hélt lærisveinninn leiðar sinnar, óþreyjufullur, unz hann morgun einn er grána tók af degi stóð á fljótsbakkanum á móts við heimkynni sín og leit ættborg sína handan við bogabrúna. Hann læddist eins og þjófur á nóttu inn í garð föður síns og heyrði andardrátt hans út um glugga svefnherbergisins; hann laumaðist inn í ávaxtagarð við hús unnustu sinnar, klifraði upp í perutré og horfði á hana greiða hárið í svefnherbergi sínu, og þegar hann bar þetta allt saman við þá mynd, sem hann hafði gert sér í hugarlund í heimþrá sinni, þá varð honum ljóst að það var hlutskipti hans að vera skáld og hann sá að í draumi skáldanna býr fegurð og yndisleiki, sem menn leita árangurslaust í heimi veruleikans. Og hann fór aftur niður úr trénu og flýði út úr garðinum og yfir brúna burt frá ættborg sinni og snéri aftur á vit dalsins í fjöllunum. Þar sat hinn aldni meistari fyrir framan kofa sinn á hinni látlausu mottu og lét fingur sína renna yfir strengi lútunnar, og í stað þess að heilsa hafði hann yfir tvö erindi um þá miklu hamingju sem listin getur veitt, og svo djúp og hljóm- fögur voru þessi erindi, að augu unglingsins fylltust tárum. Han Fook staðnæmdist nú aftur hjá meistara hins Fullkomna orðs, sem fór nú að kenna honum á hörpu, þar eð hann var fullnuma á lútu, og mánuð- imir hurfu nú eins og snjór í leysingu. Ennþá kom það tvisvar sinnum fyrir, að heimþráin yfirþyrmdi hann. í annað sinnið laumaðist hann brott að nætur- þeli, en áður en hann hafði beygt út úr dalnum, strauk vindurinn strengi hörp- unnar, sem hékk fyrir dyrum kofans, og tónarnir náðu eyrum hans og hann stóðst ekki ákall þeirra og snéri við. í hitt sinnið dreymdi hann, að hann væri að gróðursetja tré í garði sínum og eiginkona hans sæti við hlið hans og börn hans vökvuðu tréð með mjólk og víni. Þegar hann vaknaði var tunglskin í herbergi hans og viti sínu fjær reis hann upp og kom auga á meistara sinn i næsta rúmi. Hann var sofandi, en skegg hans bærðist eilítið við andardrátt hans; þá fylltist hann hatri á þessum manni, sem honum fannst hafa eyðilagt TÍMARIT MÁLS OG MENNINCAR 129 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.