Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 52

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 52
TIMARIT MALS OG MENNINGAR líf hans og framtíð. Hann ætlaði að ráðast á hann og myrða hann, en þá lauk öldungurinn upp augunum, og það færðist svo angurvært og milt bros yfir andlitið, að það afvopnaði lærisvein hans. „Hafðu það hugfast, Han Fook,“ sagði öldungurinn lágum rómi, „að þér er í sjálfsvald sett að gera það sem þú vilt. Þú getur farið til heimkynna þinna og gróðursett tré, þú getur hatað mig og drepið mig, það skiptir ekki miklu.“ „Æ, hvernig ætli ég gæti hatað þig,“ sagði skáldið og var mjög hrærður. „Það væri eins og ég ætlaði mér að hata sjálfan himininn.“ Og hann var um kyrrt og lærði að leika á hörpu og því næst á flautu, og síðan fór hann að yrkja kvæði undir handleiðslu meistarans og lærði smám saman þá leyndardómsfullu list að segja að því er virtist aðeins hið einfalda og látlausa, en koma jafnframt með því slíku róti á sál áheyrandans, að það var eins og þegar stormur geysist yfir spegilslétt vatn. Hann lýsti uppkomu sólar- innar, hvernig hún hikar við brúnir fjallanna, hvernig fiskarnir skjótast hljóð- laust eins og skuggar undir vatnsfletinum, hvernig hið unga pílviðartré vaggast í vorvindinum, og þegar menn hlustuðu á þetta, þá var það ekki einungis sólin, leikur fiskanna og hvískur pílviðartrésins, heldur virtist svo í hvert sinn sem himinn og jörð hljómuðu eitt andartak saman í fullkominni tónlist, og sérhver áheyrandi hugsaði þá í gleði eða sársauka um það sem hann elskaði eða hat- aði, drengurinn um spegilinn, unglingurinn um unnustu sína og hinn aldraði um dauðann. Han Fook vissi ekki lengur, hve mörg ár hann hafði dvalið hjá meistaranum við upptök hins mikla fljóts; oft fannst honum sem hann hefði komið í fyrsta sinn í þennan dal kvöldið áður og verið boðinn velkominn af strengleik öld- ungsins, en oft fannst honum, að tíminn og allir mannsaldrar hefðu hrunið saman að baki honum og hann hefði glatað öllum veruleika. Svo vaknaði hann eitt sinn um morgun og var aleinn í kofanum, og enda þótt hann leitaði að meistaranum og kallaði á hann, þá reyndist hann horfinn fyrir fullt og allt. Um nóttina sýndist haustið allt í einu vera gengið í garð, það hrikti í gamla kofanum í snörpum vindhvin, yfir fjöllin flugu stórir skarar af farfuglum, enda þótt tími þeirra væri enn ekki kominn. Þá tók Han Fook litlu lútuna sína með sér og hélt niður til heimkynna sinna og allstaðar, þar sem fólk varð á vegi hans, heilsaði það honum á þann hátt sem hæfir öldungum og tignum mönnum, og þegar hann kom til ættborgar sinnar, voru faðir hans, unnusta og ættingjar látnir, og annað fólk bjó í hús- um þeirra. En um kvöldið var blyshátíðin haldin á fljótinu, og skáldið Han Fook stóð á dimmum bakka fljótsins og hallaði sér upp að gömlum trjástofni, 130
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.