Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Síða 63

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Síða 63
ERLEND TIMARIT áhrif á rödd Kúbu eins og ég flyt yður hana. Eg hef ekki heldur reynt að leyna því sem mér virtist tvírætt í þessum málflutningi, eða leggja á það áherzlu. Ég endurtek: markmið mitt er að sjá til þess að rödd kúb- önsku byltingarinnar heyrist." Grein Mills er löng og ekki tök að birta liana alla hér, en kajlar úr henni jara hér á ejtir. Þ'að er rödd Kúbu sem talar: „Við tölum til ykkar af því að við erum þeirrar skoðunar, að þið hafið ekki lengur samband við okkur. Það er að vísu rétt, að við Kúbumenn höfum aldrei haft náin tengsl við ykkur. En sem þjóðir, hvor með sína stjórn, höfum við nú fjarlægzt svo hvorir aðra, að Kúbuþjóðimar eru nú orðn- ar tvær — við og sú mynd sem þið hafið gert ykkur af kúbönsku þjóðinni. Þetta kæmi kannski ekki svo mjög að sök, ef ekki væri þannig ástatt að við Kúbumenn vitum, að við erum að byrja nýtt líf, sem áður var óþekkt í Ameríku, jafnvel í heiminum. Það gæti kannski orðið nýtt líf fyrir ykkur líka. Við viljum að þið vitið, að í augum flestra okkar er þetta nýja líf það bezta sem fyrir okkur hefur komið. í augum sumra okkar — og ykkar flestra býst ég við — er margt í því óráðið, óljóst og erfitt að átta sig á því. En er ekki svo um allt nýtt? Við Kúbu- menn göngum nú götu, sem engin þjóð í Ameríku hefur áður gengið. Við vitum ekki og getum ekki vitað fyrir víst hvert sú gata liggur. En við óttumst, að það sem þið ger- ið eða látið ógert muni ráða miklu um það. Og það er okkur áhyggjuefni; því að sjáið til: það eru örlög okkar sem um er að ræða. Og þið þekkið okkur ekki, vitið ekki hvern- ig við erum og hvernig við urðum það sem við erum, hvað við erum að reyna að gera og hvaða þrándar geta orðið í götu okkar. Hugleiðið andartak hvernig við höfum kynnzt. Ymsir ykkar komu til Havana — raunar í tugþúsunda tali síðasta áratuginn. Sumir komu aðeins til að baða sig í sól- inni á baðströndum Kúbu, sem okkur Kúbu- mönnum var meinaður aðgangur að. En aðrir komu til að spila fjárhættuspil og til að hórast. Við stóðum á götuhornum og horfðum á ykkur njóta sumarleyfisins fjarri vetrarkuldum heimkynna ykkar. Við Kúbu- menn þekkjum syndina eins og aðrir, enda á að heita svo að við séum kaþólskir. En í Ifavana var syndin skipulögð, og það skipu- lag færði fáum mönnum auð fjár, en ungl- ingstelpum, tólf til fjórtán ára, alla viður- styggð pútnahúsanna. Það er kannski tvennt sem þið vitið ekki um, f járhættuspilið og saurlifnaðinn. Drjúg- ur skildingur hafnaði í fjárhirzlum spilltr- ar ríkisstjórnar Kúbu, sem ríkisstjóm ykk- ar og ýmsir kaupsýslumenn ykkar studdu. Mikið hafnaði einnig í vösum glæpamanna ykkar frá Chicago, New York og Los Ange- les. Enginn veit hve margar systra okkar voru vændiskonur á Kúbu síðustu ár ógnar- stjómar Batista. Um fjárhættuspilið eru ekki til neinar tölur, sem betur fer fyrir ýmsa, en tugþúsundir spilakassa vom á víð og dreif um eyna. Það var rækilega skipu- lögð fjárplógsstarfsemi, stjórnað beint og óbeint af valdamönnum í ógnarstjórn Bat- ista. Og ástandið á Kúbu í þessum efnum, það hafið þið átt ykkar þátt í að skapa: með stuðningi ykkar við stjóm „okkar“, með að- stoð glæpamanna ykkar og með dekri við duttlunga hinna auðugu túrista úr ykkar hópi. En nú er þessu lokið, það skuluð þið vita, kanar góðir: við höfum sett okkur lög, og við ætlum að framfylgja þeim lögum, með byssu í hönd. Systur okkar verða ekki lengur kanahómr. Þannig eru þá kynni okkar — þau eru kynni túristans af hinum innfæddu — og það eru ekki mikil kynni. Og hvað um fyrri kynni? Þið segið eða hugsið: „Við höfum ekki gert ykkur Kúbu- 141
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.