Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 80
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Við erum nýr dagur á leið vestur heiði, það er teymingur eftir góða ferð: tvisýnn dagur jafnhvítur og Langjökull er óvœginn á bringuna. Eg verð að játa, að þarna veit ég ekki livað ritstjóri Morgunblaðsins er að fara. En sá grunur læðist að mér, að stundum, þegar enginn sér, rísi Matthías Johannessen gegn þeim skoðunum, sem þjóðfélagsstaða hans skyldar hann til að túlka. lfér er á ferðinni höfundur, sem hikar ekki við að leggja á brattann, en lítt gætir þess, að hann hafi notið útsýnis af tindum. Skáldleg orð vantar ekki, efnisskipan er víða með ágætum og ljóst verður hverjum, sem les, að Matthías Johannessen er víðles- inn í bókmentum þjóðarinnar, en þetta ger- ir hann ekki að skáldi. Ifann yrkir bezt, þegar hann sleppir allri sýndarmennsku. Fögur ert jm sem horfir á mig stórum spyrjandi augum scm vita út að morgunbláu fjalli óvissunnar og cg sezt við þessa opnu glugga, horji inn í framtíð okkar hlusta á hlátur barnsins sem þú œtlar að bera undir belti fyrir mig einan, fyrir þetta vonglaða Ijóð um okkur tvö og landið: Þokaðu frá lokunni lindin mín Ijúf og trú — En víðast skortir þann herzlumun, sem gerir Ijóð. Til þess liggja einkum tvær á- stæður: mælgi og smekkleysi. Þegar fyrsta ljóðabók Matthíasar kom út, skrifaði Einar Bragi um hana ritdóm og sýndi með dæmum, hvernig unnt er að stór- bæta sum ljóðin með því einu að strika út merkingarlaus og smekklaus orð. Af þeim dómi hefur Matthías ekkert lært, — því miður. Bókina Jörð úr ægi mætti bæta mjög á sama hátt. Að sjálfsögðu eru marg- ir mér hæfari til slíkra verka, en samt ætla ég að leyfa mér að stytta Ijóðið á 23. blað- síðu. Það er þannig: Langa og kliðmjúka nótt vöklum við upp við fossa, sáum úðann hverfa í döggvott grasið eins og maríuull í heiðdjúpan himin, orð okkar tærar lindir úr svörtu bergi landsins þögn í grasi — haustið hreiðraði um sig i slóttugu skini mánans scm varpaði fölgulu Ijósi á andlit þitt: í október velja menn orð sín eins og laxveiðimenn flugur. Eg sagði: Mig þyrstir. Ertu skáld? spurðir þú. Þú segir það. Myrkrið var járntjuld milli okkar en tungl drakk það eins og þyrstur maður edik, þú horjðir á mig, sagðir jafnvonglöð og kyrrðin var djúp inni á heiðinni: Þei þei lömbin eru hvít í haga. Síðan hefur nafn þitt verið mér œvintýr og orð þín sólhvísl á norðurfjöllum. Auðvitað er unnt að stytta þetta á marga vegu, en ég hygg, að engu sé sleppt, sem fyrir höfundi vakir, þótt það sé gert þannig: Langa og kliðmjúka nótt vöktum við upp við fossa, sáum úðann hverfa í döggvott grasið, orð okkar tærar lindir úr svörtu bergi landsins þögn í grasi — haustið varpaði mánaljósi á andlit þitt: 158

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.