Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 28
Timarit Máls og menningar hellti í staupið sitt. En um leið og hann hreyfði sig, lyfti Katrín höfðinu, rauð í framan og stóreyg. Það var einsog hana langaði til að rífa hann í tætlur. — Farðu til hennar, farðu til hennar, hún er heima, — öskraði hún hásri röddu. Hún er enn meira svín en þú sem ert að koma hingað til að draga þig eftir henni. Ciccotto lauk við að hella í staupið og lagði flöskuna á horðið. Hann stóð andartak einsog hikandi, annars hugar. Þvínæst gekk hann aftur til sætis síns og sagði við mig: — Þær fara aldrei út úr húsi, þessar konur. Katrín horfði á okkur og var enn í geðshræringu. — Þú ættir að fá þér herbergi með glugga, — sagði Ciccotto, — glugga út að götunni. Það er nóg af þeim í húsinu —. Katrín yppti öxlum einsog til andmæla. — Hún stendur ekki úti í gluggum, — bætti Ciccotto við, — hún þarf þess ekki. Katrín tuldraði eitthvað. Hún þurrkaði sér um munninn með vasaklút og horfði á mig. Það var einsog hún væri mér reið. Ég gerði mig líklegan til að standa upp og ætlaði að segja: — Það er bezt ég fari, —- þegar hún spratt á fætur og bauð mér í annað staup. Ég vissi ekki hvað ég átti að segja og varð kyrr. Katrín þagði, móðguð á svipinn, en Ciccotto horfði rólegur á okkur. Það var albjart í herberginu. — Bíðum við, sagði Ciccotto, — Lína ætti að fara að koma. Þau eru ung og þeim ætti að semj a vel. Ég skildi á tali þeirra að Lína var hin stúlkan, sú sem hafði farið út um leið og við komum inn. Katrín sagði að hin væri vön að standa úti í glugga og að hún væri ófyrirleitin. — En honum lízt vel á Línu, — sagði Ciccotto. — Hann veit ekki hvað gott er. — Ég horfði á staupið mitt og lagði við hlust- ir. Það vaknaði hjá mér von. En ekkert fótatak heyrðist. Ég spurði hvenær Lína kæmi. — Þið þurfið víst að tala saman, — sagði ég, — um mál sem mig ekki varðar. — Nú hafði ég látið verða af því að standa upp. Katrín stakk sígarettum í vasa minn, svo að ég hefði nóg það sem eftir var dagsins. Ég hraðaði mér ofan stigann, án þess að líta við, og dró ekki andann léttara fyrr en ég var kominn út á torgið. Þetta var í fyrsta skipti sem ég ráfaði um auða borgina, að liðnu hádegi. Hugsunin um það, að nú vissi ég hver Lína var, og að á þessari stundu lá Ciccotto með kvenmanni, æsti mig upp og kom mér í geðshræringu. Ég var ofurlítið hreifur. Ég var ungur og mér sýndist allt svo auðvelt. Ég vissi ekki enn að ég naut þess að vera einn. Meðan ég beið eftir Ciccotto á torginu þetta kvöld, horfði ég á glugga tó- baksseljunnar, og það kom mér til að hlæja. Ciccotto var meiri þorparinn. 138
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.