Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 37
ViSarþjófurinn verið búið að koma fyrir hann áður. Svo reið hann hægt gegnum regnvotan skóginn ... Tvisvar villtist hann á leiðinni og varð sér til mikillar gremju að snúa við. Reiði hans hjaðnaði fyrst þegar hann var kominn heim að húsi skógarvarð- arins ... Þar stóð kerran tóm á hlaðinu og uxarnir hitu smá grastoppa á óræktarbala við kofann. Hann gekk inn í forslofuna og fann strax hlýjuna, sem lagði frá glóðinni á arninum. En á gólfinu rétt við arininn lá viðarþjófurinn örmagna, uppgefinn og ataður forarleðju. „Já, ég kom með hann,“ sagði skógarvörðurinn, með kynlegu augnaráði. „Hann er gersamlega magnþrota ... Hann var víst í mikilli geðshræringu þegar við hittum hann. Hann hefur sjálfsagt átt í miklu erfiði með uxana í dag. Gerið svo vel, náðugi herra, gangið hérna inn í stóru stofuna ...“ Óðalsherrann gekk inn í stofuna innar af palli ... Ut úr skugganum lædd- ist hljóðlaust ógreinileg vera, — kona Gabríels —. Hún tók hönd óðalsherr- ans og þrýsti á hana kossi. Því næst stóð hún kyrr með krosslagðar hendur á brjósti. „Hvar eru synir þínir, Gabríel?" „í vinnu, náðugi herra, þeir eru trésmiðir." Inni í stofunni var kalt og skuggsýnt. Rakalykt, ryk og brennivínsþefur gaus á móti óðalsherranum þegar hann kom inn. Hann fór úr frakkanum og lagði hann frá sér, gekk svo fram í anddyrið og að eldinum. „Já, það gengur svona, hann heldur áfram að rigna í sífellu ...“ tautaði skógarvörðurinn og horfði niður fyrir fætur sér, svo flýtti hann sér að bæta við: „Við slátruðum hænu ... konan mín ætlar að sjóða af henni súpu.“ A sömu stundu fann óðalsherrann til sultar og það kom vatn í munninn á honum. Svo leit hann niður á gólfið. Hinum megin við arininn lá sjúki mað- urinn. Hann lauk upp augunum, stórum, æðislegum, trylltum augum, og stundi út úr sér sárt og kvalafullt: „Guðfaðir minn, — Gabríel ... guðfaðir minn, — Gabríel ...“ „Hvað vanhagar þig um?“ spurði skógarvörðurinn, þýðri rödd og gekk til hans. „Guðfaðir minn, — Gabríel, gefðu mér kerti ...“ Jarðeigandanum rann kalt vatn milli skinns og hörunds: Maðurinn bjóst við dauða sínum. Einhver óvenjuleg tilfinning, ofurlítil meðaumkvun með hinum deyjandi manni gerði vart við sig sem snöggvast, og einhver orð voru 147
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.