Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 81
nœgi það „ekki til að skýra hina miklu fátækt sögunnar á staðanöfn- um í Rangárþingi samanborið við ör- nefnafj ölda Austfirðingafj órðungs.“ „Og má þá heita,“ segir Barði, „að skýring liggi fyrir hendi: Njáluhöf- undur hefur haft yfirgripsmeiri kynni af staðháttum austanlands en í Rang- árþingi.“ Sérstaklega náin kynni höf- undar af Austfjörðum telur Barði ó- tvírætt benda til þess, að höfundur sé úr Múlaþingi, því að „þangað lágu leiðir fæstra annarra en Austfirð- inga.“ Auk þessa tilfærir Barði eitt dæmi um áttatáknanir við Lagarfljót, sem veiti „vitneskju um það, að móð- urmál sitt hafi Njáluhöfundur lært í Múlaþingi.“ Af öðrum kynnum af staðþekkingu Nj áluhöfundar ræður Barði það, að hann sé allvel kunnur í Skaftafells- þingum og öllu meira en gera mætti ráð fyrir út frá því einu, að hann hafi farið þar um á leið sinni til al- þingis. Barði vitnar í ummæli Einars Ólafs Sveinssonar, þar sem hann bendir á þrjú dæmi um staðháttu, sem Njáluhöfundur lýsir af sérstak- lega náinni þekkingu. Einn þeirra staða er Kringlumýri upp af Álfta- veri. Barði tekur það fram, að þótt söguritarinn virðist vera nákunnugur staðháttum við Kringlumýri, þá gefi það engar sérstakar líkur fyrir því, að hann hafi dvalið þar í sveit. Og hann vitnar enn í orð doktors Einars, þar sem hann segir: „Vel mætti vera, Staðhœfing gegn staShœfingu að hann hefði þekkt Kringlumýri af því, að þar hefur vegur legið um. Ef farin er sú leið austur yfir, var lítill krókur til klaustursins í Þykkvabæ.“ En svo var háttað, þegar Þorvarður Þórarinsson sótti alþing sem höfð- ingi Austfirðinga, að ábóti í Þykkva- bæjarklaustri var föðurbróðir hans, Brandur Jónsson, síðar biskup á Hól- um. Um staðþekkingu höfundar í Rang- árþingi skiptir alveg sérstöku máli. Þar skiptast á sérstök nákvæmni og miklar gloppur. Barði vekur sérstaka athygli á því, að jafnframt því að öll staðþekking er nákvæmust í nágrenni Keldna og við Rangá eystri, þá er eins og allar leiðir séu sveigðar að þeim slóðum. Hann vitnar í ummæli doktors Kálunds, sem benti á það, „að svo sé að sjá, sem leiðir Gunnars á Hlíðarenda liggi upp með Rangá eystri og yfir vöðin í nágrenni við Keldur, hvort heldur er að ræða um ferðir um norðanverða Rangárvöllu eða suðvesturhluta héraðsins.“ Barði gefur þá skýringu, að höfundur láti þá Hlíðarendamenn ferðast á Keldna- mannavegum „af þeirri einföldu á- stæðu, að Keldnamannavegir stóðu skýrastir fyrir hugskotssjónum hans, er hann ritaði söguna.“ Og þó þykir Barða það mest einkennandi í þessu efni, „hvernig Njáluhöfundur minn- ist Rangár hinnar eystri. Á hans máli ber hún aðeins heitið Rangá, öldung- is eins og engin önnur Rangá væri í 191
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.