Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 53
Þorgeir Þorgeirsson
Með írskn kvikmyndafólki
Til er saga urn tvo íslendinga, sem
komnir voru til írlands þeirra erinda
að kynna sér Abbey-leikhúsið fræga.
Þeir stíga út úr lestinni á járnbraut-
arstöðinni í Dublin og sem þeir
standa þarna á brautarpallinum setur
að öðrum þeirra óstöðvandi hlátur
— yfirbugaður af fyndni hnígurhann
niður á töskur sínar og engist sundur
og saman fyrir undrandi augum hins,
sem uni síðir fær stunið upp spurn-
ingu um bvað valdi þessari ógnar-
kæti. „Líttu í kringum þig, maður!“
svarar sá káti. „Þarna er borgarstjór-
inn í Reykjavík að aka hjólbörum og
forseti íslands að sópa gólfið en
menntamálaráðherrann okkar stend-
ur þarna og betlar!“
Vissulega er undraverð líking með
útliti þessara tveggja þjóða, en sá
skyldleiki einn mundi þó varla nægja
til að skýra alla þá duldu þræði, sem
gera einstaklingum af þessum tveim
þjóðernum svo auðvelt að eiga sam-
skipti — þar koma áreiðanlega til
söguleg og félagsleg sérkenni, sem
þessar tvær eyþjóðir eiga sameigin-
leg — lífseigt og eldfornt bændasam-
félag, sem í báðum löndunum hefur
tórt lengra inn í nútímann en víðast
annars staðar og gerir það að verk-
um að vitjunartímar hlutanna verða
aðrir en hjá mennskum þjóðum.
Og skyldum við ekki kannast við
þessa stolti blöndnu spurningu, sem
strax er beint að komumanni:
„Hvernig líst þér nú á þig hérna?
Hvað finnst þér um fólkið? Hefurðu
séð nokkuð af landinu?“ Þá á maður
að undrast stórum gestrisni fólksins
og fádæma lipurð, sem vissulega er
fyrir hendi að minnsta kosti gagn-
vart útlendingum. Að fengnu svo
ágætu svari lifnar strax yfir þeim
hlutum sálarinnar, sem fengnir eru
að erfðum frá afa og ömmu, sem
bjuggu í nýlendu og annars flokks
samfélagi, ætli maður kannist ekki
við það.
En það er líka margt, sem greinir
þessar tvær þjóðir að. írar mundu í
ytri menningu og tækni vera all-
nokkru á eftir okkur — ef svo mætti
segja eru þeirra framsæknustu menn
að byrja að eygja það velferðarþjóð-
félag, sem við þykjumst vera þátttak-
endur í. Þar má heyra langar rök-
43