Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Page 56
1'imaril Múls og menningar
ríkur höfundur þrátt fyrir næstum
óyfirstíganlegar takmarkanir við-
fangsefnisins. O’Laoghaire vinnur nú
sem stendur að þáttum fyrir írska
sjónvarpið þó hann sé fjarri því hú-
inn að gefa upp vonina um að fá að
vinna að kvikmyndum, sem hann lít-
ur á sem sitt eiginlega starfsvið.
A þessu ári, sem nú er að líða féll
fyrsti ljósgeisli alþjóðlegrar frægðar
á írskan kvikmyndamann. lJað er
Patric Carey. Höfundur myndarinnar
Yeats Country.
Patric Carey minnir mann að
ýmsu leyti á þá stóru listamenn, sem
írland hefur verið svo örlátt á að
gefa hinum enskumælandi heimi
vegna þess að fátækt og fordómar
hafa svift þá öllum möguleikum til
að starfa heimavið. Undanfarna tvo
áratugi hefur hann unnið erlendis,
fyrst í Englandi og síðan lengstaf
hjá National Film Board of Canada,
sem myndatökumaður. Fyrir nokkr-
um árum flutti hann svo aftur heim
til gamla írlands en varð í fyrstu að
stunda vinnu sína að mestu í Eng-
landi því engin færi buðust lengivel
heimavið.
Árið 1965 var hundrað ára afmæli
stórskáldsins írska William Butler
Yeats og í því tilefni ákvað utanríkis-
ráðuneytið írska að láta gera kvik-
mynd um land skáldsins. Til þessa
verks var Patric Carey ráðinn.
Ég get ekki stillt mig um að láta
hér fylgja sköpunarsögu þessarar
myndar eins og hann sagði mér hana
sjálfur þótt mér sé engan veginn lagin
sú góðlátlega kímni sem hann næst-
um felur í frásagnarmáta sínum.
Strax í upphafi hafði ráðuneytið
mjög ákveðnar skoðanir um gerð
myndarinnar svo sem kostnaðaraðil-
um er títt. Þessar hugmyndir komu
engan veginn heim við ætlanir höf-
undarins, sem mestanpart voru byggð-
ar á reynslu hans sem kvikmynda-
manns og persónulegri sýn hans á
skáldskap Yeats og írskt landslag.
Upphefst nú margvíslegt þóf og mik-
ið fundastand um þessar ólíku hug-
myndir.
Loks þegar sýnt er að ferðamála-
sjónarmiðið muni hvergi ætla að
hörfa tekur Carey þá háskalegu á-
kvörðun að láta undan á yfirborðinu
og hefst hann nú handa um að fram-
kvæma sína eigin hugmynd þannig
að við lok upptökunnar liggur raun-
verulega fyrir efni í tvær gjörólíkar
myndir. Mætti nú virðast að næst
lægi fyrir að sannfæra ráðið einfald-
lega um marga kosti þessarar hug-
myndar fram yfir hina. En þetta er
ekki svo einfalt — því valda sálar-
eigindir smáþj óðarmannsins (sem
gera framkvæmd málanna ögn flókn-
ari). Þessvegna gengur hann frá
sinni hugmynd fullklipptri og bætir
síðan framanvið nokkru af efni því
sem nefndin leggur áherslu á — ræð-
ur sér síðan enskan nóboddý til að
46