Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Page 73
Náttiruvcrnd á Islandi
í störfum nefndar innan Evrópuráðs-
ins, sem starfar að náttúruverndar-
málum. Öll slík samvinna er okkur
nauðsynleg og þó hún kosti svolítið
fé, þá gefur hún okkur ýmislegt í
staðinn, styrkir okkur og eflir og
veitir okkur aðstoð í ýmsum þeim
málum, þar sem við þurfum á henni
að halda.
Hér hefur í höfuðdráttum verið
gerð grein fyrir þeim lögum og regl-
um, sem eru í gildi á hinum ýmsu
sviðum náttúruverndarmála á Islandi,
svo og því, hvernig hér er ástatt í
þessum málum. Það er reyndar ekki
lagabókstafurinn, sem allt byggist á,
heldur framkvæmd hans, mál er ekki
leyst þó búið sé að setja reglur um
það, heldur þarf fjármagn og starfs-
lið til að hrinda málum í framkvæmd,
en þetta tvennt skortir einmitt hvað
mest í sambandi við framkvæmd
náttúruverndunarmála — fé og fast
starfslið.
Náttúruverndunarmál verða hér
hjá okkur eins og annars staðar mik-
ilvægari og mikilvægari eftir því sem
fólkinu fjölgar, þéttbýlið vex og iðn-
væðing eykst. Við íslendingar stönd-
um að þvi leyti töluvert betur að
vígi en margar aðrar þjóðir, að í
okkar landi eru enn til fjölmörg ó-
spillt eða lílt spillt náttúruverðmæti,
en einmitt þess vegna ber okkur
menningarleg skylda til að þekkja
okkar vitjunartíma og vernda og
varðveita þessi verðmæti þjóðinni til
yndisauka framvegis í okkar fagra
landi.
63