Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 16

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 16
Timaril Máls og mcnningar vel menntaður og frjáls, svo að þeir sem vita fái hjá honum skynsamlega áheyrn og þeir sem ráða telji sjálf- sagt að standa honum ábyrgð gerða sinna. Slíkan almenning og slíka menn er því miður torvelt að finna nú orðið í Bandaríkjunum, sem þýð- ir jafnframt, að Iýðræði á sér þar ekki lengur stoð í þekkingu. Hinn dæmigerði áhrifamaður í handarísku þjóðlífi nútímans er meðalmaður í andlegum skilningi, stundum ötull, en engu síður meðal- maður. Andleg vangeta hans kemur þó aðeins í ljós, þegar hann endrum og eins af tilfinningalegum ástæð- um telur sig þurfa að skifta sér af máli, sem hann reynist svo ófær að leysa. Venjulega gætir hann þess þó vandlega, að láta ekki tilfinningarnar koma upp um sig, ræður hans á opin- berum vettvangi eru almenns eðlis, guðrækilegar og mærðarfullar, hörku- legar og djarfmannlegar, innantómar og glaðbeittar eftir atvikum. Hann er móttækilegur fyrir þeim hugmyndum einungis, sem eru útþynntar, endur- sagðar, þriðja flokks. Á þessari öld símtalsins, minnisbókarinnar og upp- lýsinga í útdráttarformi er hann hinn sanni höfðingi og herra. Með því að kalla þessa menn með- almenn í andlegum skilningi á ég ekki við, að þeir geti ekki stundum haft sæmilega greind, þó að það sé ekki endilega sjálfgefið. Hér er ekki um að ræða eins konar dreifingu „greindar“ í misjöfnum skerfum, rétt eins og greind væri eitthvað sjálfu sér samlíkt, eitthvað einform- að, sem sumir fá minna af, aðrir meira. Hér er fyrst og fremst um að ræða tegund greindar, eðli þess hug- ar, sem er valinn og mótaður, hvort finnanleg séu hæfni og vilji til sjálf- stæðrar, skynsamlegrar hugsunar og mats, en slíkt hefur megingildi í lífi, lund og hátterni sérhvers manns. Slíkt gildi er ekki að finna í hugar- heimi hinnar bandarísku valdastéttar. 1 þess stað koma „dómgreind“ og „kraftur“, sem reynast miklu gagn- legri í velgengnibaráttunni en víð- feðm og hárfín hugsun. Allt í kring og rétt fyrir neðan hinn valdamikla athafnamann eru hinir tæknifróðu liðsforingjar valds- ins, sem hefur verið fengið það hlutverk að kunna og jafnvel tala: blaðafulltrúar, staðgengill, ritarar, aðstoðarmenn við framkvæmda- stjórn. Og ekki má gleyma blessuðum Nefndunum. Með vaxandi fjölda slíkra sérhæfðra milliliða milli valds og ákvörðunar minnkar þekking og geta valdhafa til sjálfstæðs mats, sem aftur leiðir til reiðuleysis og stefnu- leysis. Þekkingarskortur hinna útvöldu handhafa valdsins helzt í hendur við hina ískyggilegu hafningu sérfræð- inga til áhrifa á öllum mögulegum sviðum. Þegar varnarmálaráðherr- 318
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.