Tímarit Máls og menningar - 01.10.1968, Blaðsíða 71
Ezra Pound
Canto XIII
Kung gekk
framhjá musteri keisaranna
og inn í sedrusviðarlundinn,
og svo út þaðan neðar við ána,
Og með honum Khieu Tchi
og Tian hinn lágmælti
Og „við erum óþekktir" sagði Kung,
„Viljið þið gerast stríðsvagnakappar?
Þá verðið þið þekktir,
Eða kannski ætti ég sjálfur að gerast stríðsvagnakappi eða bogmaður?
Eða fara að iðka opinbera ræðumennsku?“
Og Tseu-lou sagði, „Ég mundi koma varnarmúrunum í lag,“
Og Khieu sagði, „Ef ég væri herra yfir landi,
mundi ég koma því í betra lag en hér er.“
Og Tchi sagði, „Ég kysi heldur lítið fjallamusteri,
Þar sem gott lag væri á þjónustugjörðunum,
þar sem helgisiðanna væri gætt af samvizkusemi,“
Og Tian sagði, með hönd á strengjum lútu sinnar
Ómurinn lifði áfram
eftir að höndin var farin af strengjunum,
Og söngurinn leið upp eins og reykur, undir laufþakið,
Og hann horfði á eftir söngnum:
„Sundpollurinn gamli,
Og strákarnir sem stökkva af plönkunum,
Eða sitja í runnunum og spila á mandólín.“
Og Kung brosti við þeim öllum jafnt.
Og Thseng-sie langaði að vita:
„Hver þeirra hefði svarað rétt?“
Og Kung sagði, „Þeir hafa allir svarað rétt,
165