Tímarit Máls og menningar - 01.10.1968, Blaðsíða 114
Til félagsmanna Máls og mcnningar
Fclagsútgájan. Tvær af þeim sex búkum sem félagsnienn Máls og meun-
ingar eiga um að velja í ár komu út í vor: Jurðjrœði eftir Þorleif
Einarsson og Viðrcisn í IVadköping eftir Hjalmar Bergman. l’á eru
fjórar bækur ókomnar ót og konta þær í nóvember. Það eru tvær bækur
í liinum nýja bókaflokki Máls og menningar („pappírskiljur“ eða
„pappírsbökur"): Bandarikin og jiriðji heimurinn eftir David Horowitz
og Inngangur að /élagsjrceði eftir Peter L. Berger. Þá er bók Sigurðar
Nordals, Um íslenzkar jornsögur, þýðing á Sagalitteraturen sem kom
út á dönsku 1953. Sjötta bókin átti að vera ný skáldsaga eftir Olaf
Jóh. Sigurðsson, en því miður hefur höfundinum ekki tekizt að Ijúka
henni sökum heilsubrests. I stað hennar hefur stjórn Máls og menn-
ingar samþykkt að taka til útgáfu Sjödœgru eftir Jóhannes úr Kötlum.
Sjödœgra er af mörgum talin ágætasta ljóðabúk Jóhannesar, og í henni
liefur íslenzk nútímaljóðlist komizt á einna hæst stig, eins og mönnutn
er nú æ betur að verða ljóst. Bókin kom fyrst út 1955 og er löngu
uppscld, svo að mörgum félagsmönnum, ekki sízt hinum yngri, ælti
að vera hún aufúsugestur.
Heimskringla. Auk þeirra Ileimskringlubóka sem hafa þegar verið
boðaðar cru þessar væntanlegar fyrir jól: Fyrsta bindið af sjálfsævisögu
Páslovskís, sem kynnt er hér framar í þessu hefti; bók um Víetnam
eftir Magnús Kjartansson, en höfundurinn ferðaðist unt Norður-Víet-
nam í sumar; ný skáldsaga, Snaran, eftir Jakobínu Sigurðardóttur.
208