Tímarit Máls og menningar - 01.06.1969, Blaðsíða 44
Tímarit Máls og menningar
taste her a bit, leave her and come again, not knowing why, not caring why,
cause it’s because of love.“ Hvað um það, síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar, og við farið sitt í hverja áttina og nú orðin að sitt hverju líffær-
inu ... Er það ekki, læknir? Þó svo sé, þó svo sé, þá lifir gamli andinn, sem
batt okkur vináttuböndum í gamla daga. Og nú höfum við komið saman til
að treysta vináttu okkar og styrkja. — Verið velkomin!“
„Skál. — Skál.“ —
„Hefurðu heyrt frá Bjarna, syni þínum, nýlega, Guðmundur?“
„Já, hann hringdi frá London á mánudaginn var. Hann er alveg stóránægð-
ur með skólann og músikkennarana. — Enda ætti það nú að vera. Ekki er
bitinn gefinn.“
„Hann er að fullnuma sig í píanóleik, er það ekki?“
„Jú, einmitt. Hann hefur verið hjá beztu kennurunum hér heima og fengið
góð meðmæli. Ég hef nú lítið vit á þessu, en mér skilst, að hann sé skratti
góður.“
„Mjög góður, já, já.“
„Þetta er náttúrlega eins og hver önnur bölvuð vitleysa og ekkert raun-
sæi í þessu. Hverfandi litlar líkur til að hann verði neinn snillingur. — Þetta
eru engir peningar, eða óvissir peningar.“
„Við verðum nú að hafa listamenn samt til að gera okkur lífið örlítið lit-
skrúðugra. Hvað ég vildi, að hann Jón væri ekki svona latur að æfa sig.“
„Já, vina mín, en þeir eru ekki gefnir þessir spilatímar.”
„Strákurinn hefur alltaf verið vitlaus í þetta. Verið dreyminn og svoleiðis
nokkuð. Hann hefur það frá konunni. Dóri litli, það er sá yngri, hann er lík-
ari mér. Alltaf eitthvað að dunda, strákurinn, viljugur að hjálpa til, en fast-
ur fyrir samt. Hvað er þetta, er ég farinn að finna á mér strax?“
„Ég hef nú aldrei haft sérlega gaman að músik. Þó hef ég dálítið gaman
að sumum Beethoven — eða hafði það. Það eru þessir blindu, taumlausu
kraftar, sem gefa honum gildi.“
„Ég hef meira gaman af Mozart — leikandi lipurleiki og fullkomin músik-
tækni: daradadida dida daram ... Hann er meiri músikant. Beethoven er
heimspekingur.“ „Hvar sem þrír karlmenn koma saman
er rætt um heimspeki.“
„Ég er þeirrar skoðunar, að fílósófia hafi orðið til út úr kvennmannsleysi.“
„Fýlusoffía, er það eitthvað dóna-
legt?“
34