Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Blaðsíða 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR • 30. ÁRG. 1969
HEFTI ■ OKT.
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
S&aðreynd og hugsmíð
„Einn dag í hörpulok, um það bil sem túnið hlýtur að hafa verið fullsett litl-
um kátum fífilsólum, ól mig móðir mín, Sesselja Ketilbj arnardóttir, í heim-
inn í litlu stofunni foreldra minna á Ofeigsstað, þar sem faðir minn, Greip-
ur Uggason, var ráðsmaður hjá bróður sínum, fimmtán árum eldra manni,
séra Sigbergi Uggasyni.“
Með þessari málsgrein hefst „rás viðburðanna“ í Fjallkirkjunni; og verð-
ur saga manns trauðla byrjuð á umsvifalausari hátt: hann fæddist. Þeir
sem hyggja Fjallkirkjuna nær hreinræktaða sj álfsævisögu — og eiga við
það, að tíðindi hennar flest séu réttar staðreyndir, sannir viðburðir —, þeir
fá þegar í þessu upphafi góðan styrk af höfundinum. Staða föður hans á Val-
þjófsstað liggur að vísu á huldu; árið 1890 er hann skráður vinnumaður —
og hefur varla lækkað í metorðum frá fyrra ári, þegar embætti hans er ekki
tilgreint í sálnaregistrinu. En hin atriðin standast sögulega gagnrýni. Gunn-
ar Gunnarsson fæddist sjálfur í hörpulok, 18. dag maímánaðar. Foreldrar
hans áttu þá heima á sama bæ og föðurbróðir hans, séra Sigurður Gunnars-
son; á þeim bræðrum var einmitt 15 ára aldursmunur: Sigurður fæddur
1848, Gunnar árið 1863.
Samsvörun þessarar málsgreinar einnar við kirkjubækur væri þó harla
létt á metunum, enda kemur margt fleira til. Fjallkirkjan er öll rituð í end-
urminningastíl. Höfundurinn lætur einlægt sem hann sé að greina frá sjálf-
um sér; fjölmargir lesendur hafa blátt áfram ekki treyst sér að bera brigður
á það, þeir sem stíllinn hefur ekki beinlínis villt sýn. í verkinu eru notuð
nokkur sömu heiti náttúru og staða sem í réttri landafræði: Jökulsá á Brú,
Langanes, Smjörvatnsheiði, Akureyri, Víðivellir. Önnur nöfn bera sterkan
keim, í hljómfalli eða merkingarblæ, af heitum veruleikans: Breiðdalur-
Fljótsdalur, Hamrafjörður-Vopnafjörður, Grímsstaðir-Lj ótsstaðir, Ófeigs-
staður-Valþjófsstaður, Fjall-Brekka. í ýmsum öðrum nafngiftum kynni fisk-
ur að liggja undir steini. Uggi fluttist fimm ára gamali frá Ófeigsstað að
7tmm
97