Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Blaðsíða 13
Staðreynd og hugsmíð
ÞaS skeikar aldrei miklu, að sagan af pínu, dauða og greftrun móSurinn-
ar sé átakanlegasti kafli Fjallkirkjunnar. Höfundi hefur tekizt af einstakri
list aS miðla lesandanum þeim geðblæ ógnar og voða, sem Uggi hlýtur ein-
mitt að hafa verið haldinn við slíkt áfall. Og það mætti vera til marks um
mátt stílsins, að engin frásögn Fjallkirkjunnar hefur víst verið skilin jafn-
bókstaflega og þessi. Þegar ég fór að hyggja að sannfræði verksins í vor,
vöknuðu fljótlega hjá mér grunsemdir um sum atriði þessa kafla. SíSan fór
ég að spyrjast fyrir um þau hjá vopnfirzku fólki. Ég spurði meðal annars:
Ur hverju dó Katrín Þórarinsdóttir, móðir Gunnars Gunnarssonar? Nær
allir svöruðu hiklaust: Hún dó af barnsförum eða afleiðingum þeirra. Ég
spurði um heimildir. Menn svöruðu, að það stæði í Fjallkirkjunni. Skáld-
sagan var þannig orðin sagnfræðileg heimild um atburði, sem menn vissu
ekki sjálfir af eigin raun.
En andlát Katrínar Þórarinsdóttur bar að með öSrum hætti en dauða
Sesselju Ketilbjarnardóttur. Hún dó ekki af barnsförum eða afleiðingum
þeirra. Ég fékk að lokum heimildir lifandi fólks fyrir því, en gamlar skýrslur
höfðu áður fært mér heim sanninn um það — ef manni leyfist yfirleitt að
taka mark á þeim. Katrín Þórarinsdóttir deyr 18. september 1897, á öðru
búskaparári sínu á Ljótsstöðum, en Selja andaðist þegar fyrsta haustið á
GrímsstöSum. SálnaregistriS greinir ekki fæSingu neins barns á LjótsstöS-
um það ár, hvorki í september né öðrum mánuðum, hvorki lifandi né and-
vana — en kirkjubókin greinir fæðingu andvana barna jafnt og hinna.
Læknir Vopnfirðinga tekur fram í skýrslu sinni til landlæknis, um árið 1897,
að hans hafi tvisvar sinnum verið vitjað til sængurkvenna; en „báðum
konunum heilsaSist vel“, segir hann. Selju heilsaðist hinsvegar þannig, að
hún lét lífið. í dánardálkinum skrifar hann töluna „1“ við september 1897.
ÞaS merkir, að einn maður hefur látizt í umdæmi hans þann mánuð; það
er auðvitað Katrín Þórarinsdóttir á LjótsstöSum. Dánarorsök: pneumonia
crouposa — sem er lungnabólga.
Drengurinn, sem Selja eignaðist og galt með lífi sínu — er hann þá líka
hugsmíð? Uggi er elzta barn foreldra sinna. SíSan eignast þau þrjár dætur,
þá einn son sem deyr í reifum þar á ÓfeigsstaS, að lokum þennan rauð-
hærða dreng, sem brátt verður hinn pattaralegasti snáði og vænlegt efni í
búandmann. Þetta er skáldsagan. SannfræSin er meS sama hætti framan af.
Gunnar Gunnarsson er elzta barn foreldra sinna, síðan eignast þau þrjár
dætur, og í júlí 1894 fæðist þeim drengur sem deyr fárra vikna gamall. SíSan
skilur leiðir. HaustiS 1895, meðan þau Gunnar bóndi og Katrín kona hans
107