Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Blaðsíða 63
Minn trúnaður er ykhar trúnaður
hversu laung verður biðin unz færi gefst?
dokar við meðan stráin binda honum gaunguskó
Hann býst til að ganga á vit framvindunnar, en kveðja kyrrstöðu liins liðna
^lma’ strýkur lófa um hrjúfa ryðskelina
tímarnir eru viðsjárverðir gatan ný
þessar raddir
Endurtekningin eykur áhrif seiðsins er „þessar raddir“ bera í sér, og áhersla
er lögð á vanda tímanna, en gatan er „ný“: nýar aðstæður á erfiðum tímum.
Ogaðlokum: ..... . ... , .
milljomr hitreiða; ovissan
er betri en ævilaung bið og þorsti —
fáein feimin stökk og skref uppí opið sæti
burt — að nema tímann og drekka fjarskann
Hér verður bifreiðin myndhverfa hraðans og framvindunnar, og kvæðið
fjallar um manninn andspænis þessum heimi, „viðsjárverðum tímum“, en
niðurstaðan er full þátttaka: „burt . . .“ Yfir kvæðinu öllu og einkum lokum
þess er mikill hraði og hrynjandin hröð og stökk. En um leið er hókin sem
þannig hefst fráhvarf Þorsteins frá Hamri frá þeirri „fornyrða hríð“ er
hann hafði gengið í um skeið. Hér verður óbreytt daglegt nútímamál honum
að vopni, og kvæðin í bókinni eru að mestum hluta kveðin eftir hinum nýa
ljóðstíl, en ekki eftir hefðbundnum bragreglum, en hvert kvæðið af öðru tekur
til meðferðar vandamál samtímans beint og milliliðalaust. Þannig er tam. um
kvæðið „Blóð krefur þig dansari" (bls. 32) þar sem ofurveldi nýlenduvelda
hvíta mannsins verða að „hvítum skorpíón“ er „miðar eiturbroddi“ að hin-
um kúguðu, en kvæðið er kveðið í minningu Patrice Lúmúmba, frelsishetju
Kongó. Þannig er og um kvæðin „Harðindi“ (bls. 15) og „1961“ (bls. 27)
þar sem skáldið lýsir óvissu tímans og hættum hans þannig að: „nú er
göldróttur rökkurblærinn“ og segir að hann sé „lausmáll á frásögur“, en
með þessari persónugervingu hefjast myndhvörf kvæðisins.
Þriðji kafli bókarinnar Lifandi manna land nefnist „Birta“. Annað ljóð
hans sýnir vel hvílíkum tökum Þorsteinn hefir hér náð á myndhverfri and-
stæðu:
Mörg
og hávær eru ósannindin
þarsem þau hrannast upp á leitinu
slíkt
sjá gleggst og heyra
157